öryggis- og varnarmál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir mjög mikilvæga umræðu og fín innlegg í þessa brýnu umræðu sem við þurfum að taka hér. Ég vil líka þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir ágætissvör og ég tek undir mjög margt. Ég vil hvetja hana til dáða varðandi stjórnsýsluna, að hún verði gerð skýrari og skarpari. Í dag höfum við til að mynda enga trygga aðkomu þingsins. Utanríkisráðherra getur ákveðið á morgun að fara í það að ákveða t.d. bókanir við varnarsamninginn eða taka risastórar ákvarðanir. Þetta þarf að athuga. Mig langar samt að biðja ráðherra um að fara aðeins betur yfir netöryggið og viðbót við varnarsamninginn með bókunum. Er það ætlunin að fara í slíkar viðræður við Bandaríkin til að tryggja m.a. órofa samband Íslands við umheiminn? Mig langar að fá það aðeins skýrar fram. Mig langar líka að fá skýrara svar varðandi þyrlukosti. Það voru spurningar sem ég sendi og mér þætti vænt um að fá mjög skýr svör hvað það varðar. Og enn frekar vil ég fá skýrari svör þegar kemur að því að meta kosti og galla viðvarandi veru varnarliðs hér á Íslandi. Hvaða mat hefur átt sér stað, hverjir eru kostir og gallar varðandi fælingarmátt o.s.frv. eða hefur þetta ekki verið rætt innan ríkisstjórnar og er samstaða um þetta? Við megum ekki gleyma því að við verðum að þora að horfa til framtíðar og meta varnarhagsmuni okkar Íslendinga algerlega fordómalaust. Ákvarðanir okkar í varnar- og öryggismálum mega ekki ráðast af pólitískum kreddum eða afturhaldssemi.
Ég vil taka undir það sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson sagði áðan, pólitískur vilji er gríðarlega mikilvægur núna. Staðan er gjörbreytt og við verðum að horfast í augu við að þetta snýst ekki bara um vopn og varnir á þann hátt heldur líka um að tryggja samfélagslegt öryggi, innviði þjóðarinnar, efnahag og almannavarnir, umhverfi okkar og auðlindir. Þetta snýst um það að standa vörð um okkar grundvallargildi á borð við frelsi, lýðræði og mannréttindi. (Forseti hringir.) Við verðum að grípa til allra ráða til að verja þau og tryggja um ókomna framtíð.