153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

skráning raunverulegra eigenda.

226. mál
[12:02]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma í andsvar og spyrja út í þessa þætti, hverjir það eru raunverulega sem hafa ekki lokið þessari skráningu eða klárað þessi slit. Það er allur gangur á því en það er mikið um húsfélög eða félagsskap sem var stofnaður um einhver ákveðin tiltekin málefni. Þetta er tiltekt og þess vegna er líka um bráðabirgðaákvæði að ræða. Mín tilfinning er sú að ekki sé verið að nota 15. gr. af því að það er svo mikið af svona aðilum, en þetta skiptir enn hundruðum og þetta er enn of mikið.

Ég vil segja það, virðulegur forseti, að aðgerðir hins alþjóðlega fjármálaaðgerðahóps — þegar við vorum komin á þennan lista, svokallaðan gráa lista ef ég man það rétt, þá var það mjög slæmt fyrir okkur. Við erum alltaf að vinna að því að reyna að hækka lánshæfismat ríkissjóðs Íslands. Það eru fyrirtæki í atvinnulífinu sem fara á alþjóðlega fjármálamarkaði til að afla sér fjárfestinga. Því fannst mér og líklega öllum í þingsalnum það mjög bagalegt að við hefðum ekki verið komin lengra. Ég fagna því þeim aðgerðum sem við fórum í á sínum tíma og þetta er framhald af því. Við þurfum að fara í þetta af festu og klára þetta í eitt skipti fyrir öll.