153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

skráning raunverulegra eigenda.

226. mál
[12:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er annað atriði sem mig langar til að spyrja um, sem tengist óbeint. Það varðar alveg klárlega raunverulega eigendur. Raunverulegur eigandi er einhver sem er kominn með fjórðungshlut í félagi. Það er raunverulegur eigandi. Í öðrum lögum sem við erum með, t.d. hvað sjávarútveginn varðar, þarftu að vera 50% eigandi til að teljast tengdur aðili. Í gegnum það er maður að sjá, að því er virðist, það er erfitt að rekja það, sérstaklega einmitt vegna þessara sérstöku laga um sjávarútvegsfyrirtækin, að fólk sem á beint og óbeint samtals meira en 25% er ekki skráð sem raunverulegir eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna. Maður myndi giska á að það væri þá vegna þessarar undanþágu sem þau fyrirtæki fá frá þessu hlutfalli, 25%, sem er í staðinn 50%. Er það ekki vandamál sem við þurfum að laga?

Þetta er mjög skrýtinn munur, eitthvert sérstakt leyfi til að þurfa að eiga hærra hlutfall til að teljast tengdur aðili. Það hefur síðan áhrif á það hversu mikið af kvóta þú mátt eiga. Ef þú ert ekki tengdur aðili þá telst sá hluti sem þú átt í fyrirtækinu, kannski 49%, ekki sem sá hluti af kvóta sem telur t.d. upp 12% þakið á þorski. Væri ekki eðlilegt, fyrst verið er að skoða þessi lög, að þetta yrði jafnvel skoðað á sama tíma?