skráning raunverulegra eigenda.
Virðulegur forseti. Eitt af því sem við lærðum í fjármálahruninu var að við vorum ekki með nægilega góðar upplýsingar um tengda aðila. Það sem gerist eftir að bankarnir falla, þegar við förum yfir tengd lán og hvernig allar þessar tengingar voru, kemur í ljós að menn voru kannski mun tengdari en eftirlitsaðilar höfðu gert sér grein fyrir. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það hafi margfaldað þessi neikvæðu áhrif sem fara af stað eftir að bankarnir falla. Það er því mjög góður lærdómur í því. Við þurfum að þekkja þetta verulega. Það sem kemur fram í máli hv. þingmanns, ég er bara sammála því; því meira gagnsæi, þeim mun betra.
Það stuðlar að heilbrigðari viðskiptum á markaði og öðru slíku og býr til trúverðugleika og er til þess fallið að auka traust. Ég tel að frumvarpið sem ég er að leggja hér fram sé liður í því að byggja upp traust. Ég tel að við eigum að halda áfram í þeirri vegferð að skýra það hvar þessir eigendur liggja. Þetta snýr líka að fjármálastöðugleika. Þegar við erum komin með miklar fjárfestingar innlenda fjármálakerfisins inn í sjávarútveginn, að það liggi alveg á hreinu, þrátt fyrir að hann standi mjög vel, hvernig þessi mál eru öll.