153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

skráning raunverulegra eigenda.

226. mál
[12:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Alveg hárrétt. Það er eitt atriði í viðbót sem ég gleymdi að minnast á en það eru málamyndagjörningar í kringum það að vera raunverulegur eigandi. Það að ráða einhvern til að vera í stjórn fyrirtækisins er augljós málamyndagerningur. En það eru nokkur önnur dæmi um málamyndagerninga, eins og t.d. í Wintris-málinu þar sem fyrrverandi forsætisráðherra á að hafa selt eiginkonu sinni sinn hlut á einn dollara, sem er augljóslega ekki virði helmingshlutar í því fyrirtæki. Það þýðir ákveðna hluti með tilliti til skattalegra atriða. Það er einfaldlega verið að gefa og þá þarf að gefa þá gjöf upp til skatts. Ég velti fyrir mér hvort það sé nægilega mikið bolmagn hjá ríkisskattstjóra til að skoða mögulega málamyndagerninga hvað þetta varðar, þannig að það séu aðilar sem eru skráðir sem raunverulegir eigendur en eru það í raun og veru ekki því að þeir eru hvenær sem er tilbúnir til að stíga til hliðar fyrir réttan raunverulegan eiganda með málamyndagerningi þar sem ekki er borgað rétt verð fyrir eignarhlut í fyrirtækinu. Þetta er svona útúrsnúningur á því hvernig lögum um raunverulega eigendur er framfylgt og er raunverulegt vandamál. Við höfum séð þetta gerast og ég velti fyrir mér hvort bolmagnið til að rannsaka slík mál sé til staðar.