hlutafélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég vil aðeins koma aftur að þessu varðandi aðdraganda fjármálahrunsins og því þegar verið var að vinna úr því. Ef skil á ársreikningum og önnur umgjörð í kringum fyrirtæki er ekki nógu skýr og við sjáum að dráttur er farinn að verða á skilum og annað slíkt getur verið að ákveðnar líkur séu á að fjármálastöðugleiki hjá viðkomandi geira sé kannski að minnka, þ.e. að gengi fyrirtækisins sé mögulega að breytast. Það að hafa mjög gott eftirlit, það er það sem ég er kannski að reyna að koma orðum að, með ársreikningum kerfislega mikilvægra fyrirtækja á skipulögðum fjármálamarkaði og í kerfislega mikilvægum atvinnugreinum getur skipt mjög miklu máli til að átta sig á hvað er mögulega í vændum og til að fylgjast með því að þessi skil séu eins og vera ber. Bæði frumvörpin sem ég var að mæla fyrir skipta miklu máli, að það sé auðvelt að nálgast upplýsingar um raunverulega eigendur og að þessi skil séu regluleg og þessir tímar sem við höfum verið að stytta eru mikilvægir, af því að það kemur inn í greiningu á fjármálastöðugleika og á raunhagkerfinu hjá þessum stóru fyrirtækjum.