153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[13:27]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993, sem snýr að afurðastöðvum í kjötiðnaði, þ.e. 71. gr. búvörulaga, að veitt verði undanþága frá henni til afurðastöðva í kjötiðnaði til þess eins að þær geti unnið saman og haft með sér ákveðið samráð. Niðurstaðan og tilgangurinn með þessu öllu saman er sá að reyna að ná fram enn meiri hagræðingu en nú er orðin innan greinarinnar, bændum, neytendum og þeim sem reka fyrirtækin til hagsbóta.

Þetta er í fimmta skipti sem þetta mál er lagt fram af flutningsmönnum og þingmenn Framsóknarflokksins hafa komið að málinu í öll skiptin. Flutningsmenn á frumvarpinu, ásamt þeim sem hér stendur, eru hv. þingmenn Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Ásmundur Friðriksson.

Það er mjög ánægjulegt að horfa á og lesa þingmálaskrá sem liggur fyrir þessu þingi. Matvælaráðherra er með sambærilegt mál á sínu borði sem við fáum væntanlega til okkar í febrúar. Ég tel að það frumvarp sem við leggjum hér fram í dag sé fyrst og fremst til stuðnings og til að lýsa því yfir að við stöndum mjög þétt að baki ráðherra í því sem hann ætlar að fara að gera. Við getum einnig nýtt tímann vel á þessu hausti fram á veturinn í að vinna í þessu máli, fá umsagnir og flýta fyrir. Það er mjög mikilvægt í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru. Þetta mál er hér í fimmta skipti og þegar það var fyrst lagt fram var það verulega nauðsynlegt en það hefur mikið gerst síðan, t.d. Covid-faraldur, innrás Rússa í Úkraínu og breytingar á mörkuðum erlendis. Samkeppni hér innan lands á smásölumarkaði kemur fyrst og fremst erlendis frá og það er því mjög mikilvægt að framleiðendur hér á landi hafi ákveðin tækifæri til að keppa við mun stærri fyrirtæki sem hafa aðgang að markaði í gegnum tollasamninga o.fl. Verðmyndunin á smásölumarkaði ræðst af því á hvaða verði erlendir framleiðendur og þeir sem eru að flytja inn vöru eru að bjóða viðskiptavinum sínum vöruna. Því er mjög mikilvægt að hafa þessi verkfæri í höndunum.

Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta er kannski ekki það vinsælasta hjá ansi mörgum þingmönnum sem sitja á Alþingi og innan sumra flokka og er það vel að menn hafi skiptar skoðanir á því. Ég reikna samt með því að flestir ef ekki allir hv. þingmenn hafi sömu sýn á það að efla innlenda matvælaframleiðslu með einhverjum ráðum. Hvort þetta sé hin eina rétta leið verður tíminn að leiða í ljós en flutningsmenn þessa frumvarps eru þess fullvissir að þetta sé heppilegasta leiðin til hagsbóta fyrir alla virðiskeðjuna, þ.e. bændur, neytendur og afurðasölufyrirtæki.

Margt hefur verið gert til að reyna að styrkja stoðir innlendrar matvælaframleiðslu og er það vel sem hefur verið gert á þessu ári í tengslum við þá atburði sem við höfum farið í gegnum, og eru því miður enn í gangi, þ.e. stríðið í Úkraínu. Vissulega eru sumir framleiðendur að fá töluverðar hækkanir á sínum vörum og er virkilega ánægjulegt að það skuli vera að gerast. En það þarf meira til. Þrátt fyrir ágæta og mjög nauðsynlega björgunarpakka að tillögu spretthópsins sem hæstv. matvælaráðherra stóð fyrir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar — þar sem lagðir voru til um 2,5 miljarðar sem nú koma til og þær verðhækkanir sem eru í kortunum til framleiðenda sömuleiðis — þá þurfum við að ganga lengra. Við þurfum að ganga lengra í því að ná fram hagræðingu. Við þurfum að ganga lengra í því að skapa ákveðinn rekstrargrundvöll fyrir innlenda matvælaframleiðslu sem er því miður ekki til staðar í dag.

Tökum bara sem dæmi sauðfjárræktina og nautakjötsframleiðsluna en þar eiga menn mjög erfitt um vik þó svo að við sjáum að við erum á réttri leið. En með því að fara þessa leið, að leyfa samvinnu og samstarf innan þessara geira til að ná fram hagræðingu, eigum við að geta séð að afurðaverð til bænda komi til með að hækka enn meira. Það þarf ekki að vera samasemmerki milli þess og að verð til neytenda hækki að sama skapi. Við þurfum að reyna að ná þessu fram í hagræðingu. Við getum líka horft til þess að við getum breytt ákveðnum starfsháttum innan geirans. Það er t.d. ekkert endilega lögmál að öllum lömbum á Íslandi sé slátrað átta vikur á ári, þ.e. í september og október. Það á ekki að þurfa að vera lögmál. Ef við setjum þetta í ákveðið samhengi við nýtinguna á þeirri fjárfestingu sem liggur í afurðastöðvunum og í sláturhúsunum — ég reikna með því að ef maður myndi bjóða útgerðarmanni upp á að fá bara að nota sitt hús átta vikur á ári myndi hann hlæja allhraustlega og hrista hausinn. Og hvert er ég að fara með þessu? Jú, ef við heimilum afurðastöðvum að vinna saman þá er líka hægt að skipuleggja sig. Það er hægt að velta fyrir sér: Gætum við hugsanlega verið að nýta fjárfestinguna níu mánuði á ári í staðinn fyrir átta vikur? Þurfum við að hafa þessa fjárfestingu alla hingað og þangað um landið bundna í frekar gömlum búnaði? Það hefur ekki verið byggt nýtt sláturhús á Íslandi fyrir sauðfé í 40 ár. Jú, vissulega hefur verið endurnýjað í línum og þess háttar en það að liggja með alla þessa fjárfestingu ónotaða alla daga nema átta vikur á ári er ekki skynsamleg nýting á fjármunum.

Til þess að hægt sé að fara þessa leið þarf frumvarpið sem ég mæli hér fyrir að koma til. Það þarf að fara í gegn áður en menn geta farið að velta því fyrir sér hvernig þeir ætli að haga sauðfjárframleiðslu næstu árin. Ég veit að margir af starfsbræðrum mínum, ég er bóndi sömuleiðis, eru ekkert hoppandi kátir yfir því sem ég er að segja núna en við þurfum að velta því fyrir okkur hvernig við þróum atvinnugreinina, hvernig við ætlum að þróa þessa grein. Það er nefnilega ekki lögmál að við þurfum að gera alla hluti í dag eins og við gerðum þá í gær. Við þurfum að hugsa lengra. Við getum horft til þess að breyta framleiðslunni. Vissulega verður ákveðin samþjöppun en það er líka tækifæri. Það er tækifæri í skipulagningu á flutningum á gripunum, að jafna tímanum niður, hvenær við erum að lóga og taka gripina inn í afurðastöðvar, til að ná þessari hagræðingu fram, til að geta greitt framleiðendum hærra verð og boðið neytandanum samkeppnishæfa vöru á markaði hér heima, hágæðavöru allt árið um kring.

Við þekkjum alveg þessa leið, þ.e. í mjólkuriðnaði. Þessi leið var farin þar 2004, ef ég man rétt — ég biðst velvirðingar á því, virðulegur forseti, ef ég er að fara með rangt ártal — en þar hefur hagræðingin heldur betur skilað sér. En við þurfum líka að hafa það á hreinu að það er verið að fara ákveðna leið og menn verða þá líka að spila eftir þeim leikreglum sem settar eru. Það er mjög mikilvægt líka. Menn mega ekki bara haga sér eins og menn séu í villta vestrinu. Það verður að vera ákveðinn rammi þegar menn fá svona undanþágur og menn verða að fara eftir rammanum. Það er lykilatriði. Það hefur verið talað um að í sauðfjár- og nautakjötsframleiðslu geti hagræðingin orðið 1,5 milljarðar á ári. Ef við tökum inn alifugla og svín gætum við verið að tala um 2 til 3 milljarða. Þetta eru miklir peningar. Þetta eru jafn háar upphæðir og ríkið lagði til framleiðenda á þessu ári, þ.e. 2,5 milljarðar, vegna þeirra aðstæðna sem sköpuðust vegna stríðsins í Úkraínu, Covid, hækkandi aðfanga og þess háttar.

Það er ekki alltaf lausnin að þurfa að leggja til fjármagn inn í greinina. Lausnin felst miklu frekar í því að greinin geti verið sjálfbær og spilað eftir ákveðnum leikreglum og það er löggjafans að skapa starfsskilyrði með lögum. Það er einnig löggjafans og framkvæmdarvaldsins að koma til bjargar eins og gert var á þessu ári með fjármunum. En lykilatriðið er að skapa ákveðin starfsskilyrði til að innlend matvælaframleiðsla geti þróast, í þessu tilliti í framleiðslu á kjöti, á þann veg að hún skapi verðmæti sem skilar frumframleiðandanum hærra verði og neytandanum hágæðavöru á góðu verði.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þessa framsögu lengri en ítreka það sem ég sagði áðan. Þó svo að við séum að leggja hér fram frumvarp í fimmta skipti á jafn mörgum árum þá gleður það mig afskaplega að sjá að á þingmálaskrá matvælaráðherra er sambærilegt frumvarp sem kemur þá væntanlega fram í febrúar. Við nýtum þá tímann í atvinnuveganefnd til að undirbúa komu frumvarpsins með þessu frumvarpi. Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir hefur örugglega verið að hugsa um Jesúbarnið, að undirbúa komu þess, þegar hún glotti hér úti í sal en ég ítreka að það er verulega ánægjulegt að við séum að stíga þetta skref. Það eru fleiri og fleiri farnir að taka undir með okkur í þessu. En ég geri mér líka grein fyrir því að þetta er umdeilt og vænti þess að einhverjir komi í andsvör og ræður sem verður bara gott upp á umræðuna. Umræðan er alltaf betri þegar menn skiptast á skoðunum.