búvörulög.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að segja að ég vil ekki útiloka að þessi leið sem hér er lögð til sé sú sem þurfi að fara en það þarf þó að gera það að mjög vandlega skoðuðu máli vegna þess að við höfum samkeppnisvernd til að vernda neytendur á markaði og hún er mjög mikilvæg. Við búum í samfélagi þar sem fákeppni er reglan, því miður, vegna fámennis og aðstæðna. Hitt er svo að ég velti fyrir mér hvort leiðin sem farin hefur verið í mjólkuriðnaðinum sé endilega góð fyrirmynd fyrir kjötiðnaðinn. Mig langar að spyrja hv. flutningsmann hvort hann telji að afurðastöðvarnar, ég veit að þær gegna ýmsum hlutverkum, geri það gagn sem þarf í þessari framleiðslukeðju. Hvað um að taka afurðastöðvarnar út úr myndinni og selja milliliðalaust, frelsa bændur? Beint frá býli, er það ekki leiðin sem þarf að fara? Eins og ég skil það þá eru það afurðastöðvarnar sem maka krókinn í þessari virðiskeðju.