153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[14:01]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það var nefnilega þannig að þegar við innleiddum löggjöf frá Evrópusambandinu um heimaslátrun þá gerðumst við pápískari en sjálfur páfinn í Róm vegna þess að það var ákveðið að túlka það þannig á Íslandi að það þyrfti að fækka sláturhúsum á Íslandi niður í næstum því ekki neitt. Við sitjum svolítið uppi með það, en það er kannski önnur umræða. Ég hef mjög mikla samúð með stöðu sauðfjárbænda og kjörum þeirra í þessu samhengi. Ég er ekki viss um að allir kjötframleiðendur séu á sama stað og sauðfjárbændur og ég held að það sé mjög mikilvægt að við hér gerum það sem við getum til að tryggja framleiðslu þeirra og tryggja heilnæma góða íslenska vöru og helst á því verði að fólk hafi efni á að kaupa hana, af því að það skiptir auðvitað mjög miklu máli líka. Mig langar í seinni umferðinni að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson hvort hann hafi fulla trú á því að þessi aðferð geti bætt kjör sauðfjárbænda.