153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[14:02]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið við spurningu hv. þingmanns er: Já. Megintilgangurinn með framlagningu þessa frumvarps er að ná fram þessari ákveðnu hagræðingu til að frumframleiðandinn fái hærra verð og lykilatriðið er það að neytandinn fái vöruna á sanngjörnu verði. Við vitum það alveg að ef þú hækkar á einum stað þá þarftu að ná niður kostnaði einhvers staðar annars staðar eða láta hækkunina alla fara út í verðlagið. Þannig að svarið er já við þeirri spurningu hvort þetta komi til með að bæta hag bænda. Þar er sannfæring mín algerlega 100%.