153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[14:19]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ég og hv. þingmaður skiptumst á skoðunum um þetta efni. Við erum með ákveðið fyrirkomulag og hv. þingmaður gerði því ágætlega skil áðan þegar ákveðið fyrirtæki var dæmt til að greiða ákveðnar bætur. Í grunninn er það þannig að við erum með ákveðið fyrirkomulag og menn eiga að spila eftir ákveðnum leikreglum. Þá er það ekki fyrirkomulaginu að kenna að menn fari ekki eftir leikreglum — getum við, ég og hv. þingmaður, ekki verið sammála um það? Við erum með ákveðið fyrirkomulag, með ákveðnar leikreglur og þeir voru væntanlega ekki dæmdir fyrir að fara að leikreglum, ég get ekki skilið það þannig.

Hv. þingmaður kom inn á samruna tveggja fyrirtækja norður við Eyjafjörð, Kjarnafæðis og Norðlenska, og þannig vill til að sá sem hér stendur var í fyrra lífi, eins og maður segir, einn af þeim sem stóðu að þeirri sameiningu. Ég þekki hana mjög vel og er búinn að fara í gegnum þann pakka, þ.e. að sameina þessi tvö fyrirtæki undir samkeppnislögum. Jú, vissulega gekk það ágætlega. En í því samhengi sem verið er að tala um í frumvarpinu erum við að tala um mun stærri og meiri samruna en var hjá þeim tveimur fyrirtækjum. Það er alveg gríðarlegur munur þar á.