búvörulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég ítreka það sem kom fram í fyrri spurningu minni til hv. þingmanns sem snýr að fyrirkomulagi og leikreglum. Það er ekki fyrirkomulaginu að kenna, ég spyr hvort við getum ekki verið sammála um það, ef menn fara ekki að leikreglunum. Neytendur og bændur — við skulum hafa það í huga að bændur eru líka neytendur. Það er stórt atriði líka. Vissulega er það þannig þegar farið er af stað í ákveðna vegferð, og það eru þessir flutningsmenn sem standa að frumvarpinu, sem snýr að því að reyna að bæta hag bænda og neytenda. Mér heyrist að ég og hv. þingmaður séum sammála um meginþættina. Þetta er bara spurning um fyrirkomulagið sem við notum til að ná markmiðum fram. Það má vel vera að skynsamlegra sé að fara í gegnum samkeppnislögin en við þekkjum þessa leið og ég er í sjálfu sér ósammála því að við séum að binda menn frekar niður. Það er mjög mikilvægt þegar þessi undanþága er veitt frá 71. gr. búvörulaga að settar séu mjög skýrar leikreglur um það hvernig menn ætla að spila á vellinum.
Að lokum vil ég spyrja hv. þingmann að því sem snýr að samkeppni á smásölumarkaði hér innan lands, hvort hún geti ekki verið sammála mér í því að samkeppni á smásölumarkaði er verðmyndandi erlendis frá.