153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[14:28]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Við erum að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum sem fjallar um 71. gr. búvörulaga. Hér hefur mikið verið talað um samkeppnislög og þann markað sem við erum að berjast við eða lifum í. Ég vil benda á að innan Evrópusambandsins eru í gildi víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum — og hv. þm. Þorgerður Katrín tekur á sprett — til að styðja við framkvæmd hinnar sameiginlegu … [Hávaði í þingsal.] (Forseti hringir.) Bent hefur verið á að innan Evrópusambandsins eru í gildi víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum til að styðja við framkvæmd hinnar sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Til staðar eru víðtækar heimildir innan sambandsins til markaðsíhlutunar vegna landbúnaðarafurða, þar með talið til opinbers stuðnings og stjórnunar framboðs afurða, heimildir til að leggja á viðbótarinnflutningsgjöld og heimildir til ráðstafana gegn röskun á markaði.

Það er alveg ljóst að við erum í stærri heimi heldur en akkúrat þessi eyja sem við lifum á hvað varðar fæðuframleiðslu enda erum við mjög háð innflutningi á matvöru og verðum það áfram og við ætlum ekkert að fara til baka með það. Nýverið kom út skýrsla starfshóps um neyðarbirgðir. Starfshópnum var falið að gera skýrslu um nauðsynlegar birgðir til að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum. Okkur er hollt að rýna í þessa þætti, hvernig sem á stendur. Þeir tímar sem við lifum á núna minna okkur á hversu mikilvægt er að tryggja fæðuöryggi í landinu. Innlend framleiðsla mun ekki geta uppfyllt þá fjölbreytni sem eftirspurn krefst en það er ljóst að við getum spýtt verulega í til að tryggja að neytendur hafi ávallt aðgang að góðum og heilnæmum matvælum. Stór hluti þeirra fæðuflokka sem við neytum er innfluttur og við erum alltaf háð þeim innflutningi hvað sem verður. En við getum haft það í forgrunni að styrkja innlenda framleiðslu og íslenskan landbúnað. Staðan í dag er þannig hvað varðar sauðfjárræktina að sauðfé hefur ekki verið færra hér í nærri 200 ár og í vetur vorum við komin niður í 385.000 vetrarfóðraðar kindur sem er fækkun um 30.000 á milli tveggja ára og bændum fækkaði á sama tíma um 100 á þessum tveimur árum. Nú berast fréttir af því að það verði enn frekari fækkun á sauðfé og þeim bændum fækki líka sem eru í sauðfjárrækt. Maður hefur heyrt allt of margar sögur af því að bændur hafi hreint og beint verið að flytja beint úr réttunum í sláturhúsin því að þeir eru að skera allt niður.

Við þurfum alltaf að hafa í forgrunni að styrkja innlenda framleiðslu. Með því að styðja við íslenska landbúnaðarframleiðslu tryggjum við ekki aðeins fæðuöryggi heldur verndum við einnig störf fólks og tryggjum fjölbreytni atvinnulífsins. Það gleymist nefnilega oft að þúsundir einstaklinga starfa við matvælaframleiðslu hér á landi. Með því að efla landbúnað er hægt að draga úr niðursveiflu í hagkerfinu og um leið að tryggja fæðu- og matvælaöryggi í landinu. Styrking afurðastöðva skiptir sauðfjárræktina sérstaklega miklu máli þar sem það hefur orðið markaðsbrestur. Undanfarin ár hefur afkoman í greininni verið á niðurleið og hefur eiginlega náð botni sínum. Það þarf átak til að geta spyrnt sér upp frá honum. Það er ljóst að staða afurðastöðva hér hefur verið með þeim hætti að ekki hefur verið hægt að greiða hærra verð til bænda og það kemur engum til góða, hvorki bændum né neytendum. Útgangspunkturinn er að hagsmunir bænda og neytenda fara alltaf saman. Því er sameiginlegt baráttumál að standa vörð um íslenska matvælaframleiðslu. Sambærileg breyting og lögð er til í þessu frumvarpi var gerð fyrir afurðastöðvarnar í mjólkuriðnaði, það hefur komið hérna fram, og hafði í för með sér mikla hagræðingu og það skilaði sér auðvitað til neytenda, bæði neytenda og framleiðenda, auk þess sem það hafði í för með sér nýsköpun í greininni og stórbætti vöruúrvalið. Ég held að með þessari breytingu sé hægt að fara í nýsköpunarvinnu og bjóða upp á að jafnvel breyta þessu ferli, eins og flutningsmaður þessa frumvarps kom inn á, við þurfum ekki að hafa það meitlað í stein. En það sem er mikilvægast, af því að við erum að tala um samkeppni, er að sauðfjárframleiðendur hér á landi nái að standa jafnfætis þeim framleiðendum sem þeir eru að keppa við. Þar vil ég nefna t.d. skilarétt verslananna á íslenskum kjötafurðum. Hver er hvati verslana til að hafa þessar vörur í forgrunni þegar þær geta skilað þeim bara jafnóðum? Það er ekki þeirra hagur að selja þetta nema þá að koma til móts við neytendur sem þær vissulega gera líka. En það er svo margt annað sem við þurfum að horfa til, sérstaklega á svona tímum, og horfa á þetta í stærra samhengi heldur en akkúrat hér innan lands því að við erum að keppa við matvælaframleiðendur um allan heim.