varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir geti ekki sótt þingfundi á næstunni og formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Haraldur Benediktsson verði fjarverandi á næstunni.
Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni og formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir verði fjarverandi á næstunni.
Þá hafa borist bréf frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Ingu Sæland, Bjarna Jónssyni og Jódísi Skúladóttur um að þau verði fjarverandi á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Eva Sjöfn Helgadóttir, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi, Teitur Björn Einarsson, 1. varamaður á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi, Anna Kolbrún Árnadóttir, 1. varamaður á lista Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, 2. og 3. varamaður á lista Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi, Iða Marsibil Jónsdóttir og Elsa Lára Arnardóttir, en 1. varamaður hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Wilhelm Wessman, 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir og 3. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll.
Eva Sjöfn Helgadóttir, Teitur Björn Einarsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Iða Marsibil Jónsdóttir, Elsa Lára Arnardóttir, Wilhelm Wessman og Lilja Rafney Magnúsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.
Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.