153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

vaxtahækkanir.

[15:20]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að vitna í tölur úr frétt Stöðvar 2 í vikunni en þar var rætt um stöðuna hjá þremur aðilum. Hjá einum hafði afborgun hækkað úr 118.000 í 207.000, sem sagt um 89.000 á mánuði. Annar greiddi 157.000 fyrr á þessu ári en núna er greiðslubyrðin 240.000 og hefur hækkað um 83.000. Sá þriðji hafði greitt 129.000 en nú er greiðslubyrðin 280.000 sem er hækkun upp á 151.000. Að meðaltali hafa afborganir af lánum þessara einstaklinga hækkað um 108.000 á mánuði. Meðaltal tekna þeirra fjögurra einstaklinga sem ég vitnaði í áðan er um 1 milljón króna og ég hef litlar áhyggjur af þeim sem eru með þær tekjur eða meira, þó að ég telji samt ekki réttlætanlegt að þeir þurfi að greiða jafn mikið og raun ber vitni til bankanna. En sá sem er með 668.000 kr. í laun á mánuði fær ekki nema 475.000 kr. útborgaðar. Hækkunin ein og sér er 23% af ráðstöfunartekjum hans og heildarskuldabyrði fer úr 44% í 59% miðað við fyrrgreindar tölur. Hann mun ekki standa undir þessu til lengdar og um leið og það má fagna því að mörg heimili hafi það nógu gott til að hífa upp meðaltalið þá eru það ekki þau heimili sem ástæða (Forseti hringir.) er til að hafa áhyggjur af. Það eru hin heimilin, heimili í lægstu tekjutíundunum, sem eru algjörlega óvarin gagnvart því ástandi sem nú ríkir og ríkisstjórnin hefur ekki gripið til neinna ráðstafana til að verja þau.