153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

vaxtahækkanir.

[15:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það sem við eigum fyrst og fremst að gera er að taka á verðbólgunni og beita opinberu fjármálunum í þágu þess. Við erum í stórum aðgerðum í húsnæðismálum sem eru einn helsti drifkraftur verðbólgu undanfarin ár, þ.e. hækkanir á húsnæðisverði í landinu. Um þessi dæmi sem eru talin upp vil ég segja að það er ekki þannig að fólk standi ekki frammi fyrir neinum valkostum af nokkru tagi. Auðvitað getur fólk leitað eftir því að endurfjármagna lánin sín ef aðstæður bjóða upp á það. Það eru kannski helst þeir sem hafa tekið mjög löng, verðtryggð jafngreiðslulán sem geta lítið gert til að bæta þar við. En það er án efa þannig að einhverjir hafa spennt bogann of hátt. Við sjáum ekki almenn merki um það í fjármálakerfinu í dag. En áður en við komumst að þeirri niðurstöðu að allir séu að upplifa svona mikla skerðingu á ráðstöfunartekjum sínum eða aukna greiðslubyrði skulum við hafa í huga (Forseti hringir.) hve mikið kaupmátturinn hefur vaxið í aðdragandanum, eignaverðið er líka að hækka og til eru úrræði sem geta dregið úr greiðslubyrði.