153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

eftirlit með störfum lögreglu.

[15:25]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Í fyrsta lagi er farið hér yfir frávik í störfum lögreglu sem í daglegum störfum sínum með mikilli aukningu mætir vopnuðu fólki og við þær aðstæður geta komið upp frávik. Við getum sett okkur sjálf í þessar aðstæður, að til að tryggja öryggi sitt þá er alltaf viðbúið að einhver frávik komi upp. Það ber auðvitað að harma það en það fylgir þeirra vinnu. Það er gríðarlega mikil aukning á útköllum þar sem vopn koma við sögu. Það að eftirlitsnefnd með störfum lögreglu sé algerlega máttlaus er auðvitað alger fásinna, stenst enga skoðun. Síðast í morgun átti ég fund með þessari nefnd þar sem við vorum að fara yfir stöðuna og þar er auðvitað eitt og annað sem við þurfum að líta til núna við það frumvarp sem við erum að leggja lokahönd á, sem gefur lögreglu auknar heimildir til afbrotavarna. Við erum þannig að efna það sem ég nefndi hér og var komið inn á í svari mínu síðast, að við þurfum að styrkja þetta eftirlit í samræmi við þær auknu heimildir sem þingið kemur væntanlega til með að veita lögreglu, eða ég geri mér vonir um það. Þannig að það stendur eftir og við eigum m.a. fundi með þessari nefnd. Við erum að greina það hvað við getum gert betur við núverandi aðstæður og hvernig við getum í breyttu umhverfi tryggt að þetta eftirlit sé fullnægjandi.