eignarhald á Landsbankanum.
Hæstv. forseti. Ég vil spyrja hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra út í fjármálakerfið. Við í Vinstri grænum leggjum áherslu á að ríkið verði áfram eigandi Landsbankans og höfum raunar talað um að skapa umgjörð um starfsemi samfélagsbanka sem starfar samkvæmt umhverfis- og samfélagssjónarmiðum. Ég held að þessum áherslum muni bara vaxa ásmegin og þau verði sífellt mikilvægari í þeim breytingum sem heimurinn stendur frammi fyrir á komandi misserum.
Herra forseti. Mig langar því að nota tækifærið hér og spyrja hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra út í afstöðu hennar og hennar flokks til eignarhalds eða hugsanlegrar sölu á Landsbankanum sem ég, líkt og ég sagði áður, tel að sé mjög mikilvægt að haldi áfram að vera í eigu ríkisins. Það skiptir máli hvernig bankastarfsemi í landinu er háttað og hvernig henni er fyrir komið.