eignarhald á Landsbankanum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir fyrirspurnina og fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga verkefni sem fram undan er, þ.e. frekari endurskipulagningu fjármálakerfisins. Það er mjög ánægjulegt að hafa tekið þátt í því á sínum tíma að endurbyggja þetta fjármálakerfi og að ríkissjóður hafi á sínum tíma fengið stöðugleikaframlögin sem fólu það m.a. í sér að Landsbankinn og Íslandsbanki og hluti af Arion banka þurftu allir að koma með ákveðið fjárframlag sem nam í kringum 700 milljörðum. Það hefur valdið því að skuldastaða ríkissjóðs Íslands hefur verið með allra besta móti. Á sínum tíma voru skuldir ríkissjóðs í kringum 30% af vergri landsframleiðslu en við sjáum fram á það núna, jafnvel þrátt fyrir Covid, að skuldahlutfallið verði, ef allt gengur eftir, í kringum 33%. Ég tel að það hafi verið mjög farsælt hvernig stjórnvöld hafa farið í þetta allt.
Hv. þingmaður spyr um skoðun Framsóknarflokksins á eignarhaldi Landsbanka Íslands. Það er alveg ljóst að við viljum að Landsbanki Íslands verði áfram í eigu þjóðarinnar og við teljum að það sé mjög mikilvægt. Varðandi þær hugmyndir sem hv. þingmaður kemur með, að þróa Landsbanka Íslands frekar í átt að samfélagsbanka, þá er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn er mjög opinn gagnvart því og líka að skoða svokölluð köld svæði á Íslandi þar sem fjárfestingar hafa jafnvel verið minni en hér á höfuðborgarsvæðinu og hvernig þjóðarbanki, Landsbanki Íslands, getur komið betur að þeim málum.