153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

eignarhald á Landsbankanum.

[15:50]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Á síðasta kjörtímabili fór ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir í mikla vinnu sem bar heitið Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og þar eru ákveðnar línur lagðar um það hvernig við teljum að sé farsælt að endurskipuleggja fjármálakerfið eftir fjármálahrunið. Það er alveg ljóst í mínum huga að mjög fljótlega, og sá tímapunktur er má segja nánast alveg að koma, þurfum við að uppfæra þessa hvítbók, bæði vegna þess að það hafa átt sér stað miklar breytingar á öllu umhverfi fjármálastofnana og þá um leið að uppfæra þessa heimild, hún má vera skýrari. Ég tek undir það með hv. þingmanni og ítreka það að það er alveg á hreinu í mínum huga að Landsbankinn verður áfram þjóðarbanki og við þurfum að huga frekar að því í sameiningu hverjar hans áherslur verða.