um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þessi þáttur í þingstörfunum er alltaf mjög spennandi þegar koma óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra. En ég velti fyrir mér hvort þessi tími hefði kannski frekar átt að vera óundirbúnar fyrirspurnir til hv. þingmanna því að hér í tvígang komu þingmenn upp og spurðu ráðherra út í eitthvað sem aðrir þingmenn höfðu sagt, annaðhvort í samtalsþætti eða á einhverjum fundi einhvers staðar. Þannig að ég velti því fyrir mér hvort það færi betur á því að það væri þá undir liðnum störf þingsins. En bara svona til að taka af allan vafa þá er þingmaðurinn sem vísað var í í fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur áðan ég, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir. Og já, ég sagði að ég teldi að landamærin væru ekki of opin og ég dáist að því að hæstv. ráðherra hefur greinilega fylgst með þættinum og skynjað alveg hvað ég var að segja þar, þ.e. að við viljum breyta þeim séríslensku reglum sem eru í útlendingalögunum okkar. En það hefur ekki með það að gera hvað landamærin varðar og það er full ástæða til að bjóða fólki til landsins sem vill koma hingað, búa hér, vinna hér og taka þátt í íslensku samfélagi.