153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

landamæri.

212. mál
[16:00]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um landamæri. Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og ég legg það fram að nýju með minni háttar breytingum. Sérstök lög um landamæri hafi ekki verið sett áður en hugmyndin er þó ekki ný. Á undanförnum árum hafa málefni landamæra tekið örum breytingum og leitt af sér fjölmargar áskoranir, m.a. vegna aukins eftirlits með löglegri umferð um landamæri. Innan Schengen-samstarfsins hefur verið lögð áhersla á upplýsingaskipti, nýtingu tækninýjunga og styrkingu landamæraeftirlits, m.a. með því að styrkja fyrirliggjandi upplýsingakerfi Schengen-samstarfsins, kynna ný kerfi til sögunnar og efla Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex. Þróun hér á landi í málefnum landamæra og landamæraeftirlits hefur tekið mið af stefnu Schengen-samstarfsins og þróun þess, enda erum við skuldbundin til þess sem þátttakandi í samstarfinu.

Megintilgangur frumvarps til laga um landamæri er að tryggja að landamæravarsla sé framkvæmd með öruggum og skilvirkum hætti og til samræmis við lög, reglugerðir og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist. Það er bæði hugsað sem þáttur í að tryggja öryggi borgara og samfélagsins í heild sem og að treysta löggæslustofnanir sem sinna þessu hlutverki. Því er ætlað að skýra ábyrgð, stuðla að samstarfi milli viðeigandi yfirvalda sem fara með málefni tengd landamærum og styðja baráttu gegn glæpum þvert á landamæri, ólöglegum fólksflutningum og ógn við allsherjarreglu og þjóðaröryggi.

Efni frumvarpsins tekur að miklu leyti mið af núgildandi lögum og reglum sem gilda um för einstaklinga yfir landamæri, þá aðallega lögum um útlendinga, reglugerð um för yfir landamæri sem sækir stoð sína til þeirra laga, ásamt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um för fólks yfir landamæri, þ.e. Schengen-landamærareglunum. Þessar meginreglur sem gilda um för einstaklinga yfir landamæri hafa því verið skilmerkilega teknar saman í frumvarp þetta til hagræðis fyrir einstaklinga sem lögin taka til, verði frumvarpið að lögum, og þeirra yfirvalda og aðila sem starfa á grundvelli þeirra. Má þar nefna ákvæði um ábyrgð og framkvæmd landamæravörslu, skyldur flutningsaðila, reglur um frjálsa för á innri landamærum nema tímabundið eftirlit hafi verið tekið upp og um komu- og brottfarareftirlit á ytri landamærum. Að sama skapi er lagt til að ákveðin ákvæði í lögum um útlendinga taki breytingum eða falli brott. Með tilkomu frumvarps þessa þykir enda rétt að mæla fyrir um landamæravörslu og réttindi og skyldur bæði íslenskra ríkisborgara og útlendinga við för yfir landamæri í sérstökum lögum um landamæri. Þær grunnreglur sem í frumvarpinu er að finna eiga því almennt við um alla sem ferðast um eða yfir landamærin, hvort sem þeir eru íslenskir eða erlendir ríkisborgarar. Af því sögðu er óheppilegt að slík ákvæði séu eingöngu að finna í lögum um útlendinga.

Með frumvarpinu er ekki síður stefnt að því að styrkja lagastoðina fyrir reglugerð um för yfir landamæri, setja lagastoð fyrir reglugerðir sem ætla má að þurfi að innleiða á grundvelli laganna, m.a. vegna þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu og innleiða ákveðin efnisákvæði Schengen-gerða um ný upplýsingakerfi, svokallað komu- og brottfararkerfi EES annars vegar og ferðaupplýsinga- og ferðaheimildakerfi ETIAS hins vegar. Stefnt er á að kerfin verði tekin í notkun á öllu Schengen-svæðinu í maí og í nóvember á næsta ári. Til að það gangi eftir verða öll aðildarríkin að vera tilbúin samtímis fyrir starfrækslu kerfanna, m.a. með viðeigandi mannafla og þjálfun, tengingu fyrirliggjandi landamæragrunnvirkja við kerfin, réttum hug- og tækjabúnaði og lagaumgjörð. Frumvarp þetta er mikilvægur liður í hinu síðarnefnda en Ísland er skuldbundið til að innleiða þessar gerðir og þar með kerfin á grundvelli Schengen-samstarfsins.

Ég fer nú nánar yfir hvort kerfi um sig en þau munu hafa í för með sér breytingar á landamæraeftirliti hér á landi.

Komu- og brottfararkerfið verður sett upp á öllum ytri landamærum Schengen-svæðisins og mun halda rafræna skráningu um komur og brottfarir ríkisborgara þriðju ríkja sem heimiluð hefur verið stutt dvöl á Schengen-svæðinu, þ.e. í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Kerfið mun einnig halda skráningu um þá sem hefur verið frávísað á landamærum. Í framkvæmd verður það svo að við komu ríkisborgara þriðja ríkis um ytri landamæri munu landamærayfirvöld skrá ákveðnar persónuupplýsingar einstaklingsins ásamt andlitsmynd eftir atvikum og fingraförum hans í kerfið. Þá verður einnig haldin sérstök komu- og brottfararskráning um viðkomandi. Breyting verður því á núverandi framkvæmd þar sem takmarkaðar persónu- og lífkennaupplýsingar einstaklinga fást í dag með því að skanna vegabréf viðkomandi og þær bornar saman við tiltekna gagnagrunna eins og Schengen-upplýsingakerfið. Þá er í dag engin skráning haldin um komu og brottfarir einstaklinga inn og út af svæðinu. Komu- og brottfararkerfið mun einnig koma til með að nútímavæða og einfalda landamæraeftirlit, m.a. með því að koma í stað þeirrar skyldu landamæravarða að stimpla vegabréf og með kerfinu næst einnig samhæfð yfirsýn allra Schengen-ríkjanna yfir þá sem dvelja á Schengen-svæðinu umfram heimilaða dvöl. Í frumvarpi þessu sem ég mæli nú fyrir er kveðið á um ábyrgð ríkislögreglustjóra á starfrækslu íslenska hluta kerfisins hér á landi, um þær persónu- og lífkennaupplýsingar sem heimilt er að skrá í kerfið og um aðgangsheimild tilskilinna yfirvalda að því.

Ferðaupplýsinga- og ferðaheimildakerfið er hins vegar kerfi sem gerir þá kröfu til ríkisborgara þriðju ríkja sem eru ekki áritunarskyldir að sækja um ferðaheimild áður en þeir ferðast inn á Schengen-svæðið. Með slíkri umsókn er betur hægt að meta hvort öryggisáhætta, hætta á ólöglegum fólksflutningum eða aukin faraldurshætta stafi af komu þessara einstaklinga innan Schengen-svæðisins. Ítarleg skoðun á heimild ríkisborgara þriðja ríkis sem er undanþeginn áritun við komu inn á Schengen-svæðið fer nú aðeins fram á ytri landamærum og leiðir til frávísunar ef heimild fyrir komu er ekki til staðar. Ferðaheimild minnkar þannig líkurnar á því að einstaklingur, sem yrði að öllum líkindum vísað frá við komu, ferðaðist að ytri landamærum Schengen-svæðisins. Útgefin ferðaheimild mun þó ekki veita sjálfkrafa rétt til komu þar sem endanleg ákvörðun verður enn í höndum landamæravarða á landamærum en þá að undangengnu frumeftirliti ferðaheimildakerfisins. Í frumvarpinu er mælt fyrir um stofnun landsskrifstofu ferðaheimildakerfisins hér á landi sem hefur heimild til að veita, synja, afturkalla og/eða ógilda ferðaheimild samkvæmt nánari reglum þar um. Einnig er mælt fyrir um kæruheimild vegna slíkra ákvarðana og um ábyrgð og aðgang tilskilinna yfirvalda að kerfinu. Þá er einnig mælt fyrir um auknar skyldur flutningsaðila sem flytja farþega um ytri landamærin í tengslum við innleiðingu kerfanna. Líkt og með komu- og brottfararkerfið er lagt til að ríkislögreglustjóri beri ábyrgð á íslenska hluta ferðaheimildakerfisins hér á landi sem og á starfrækslu landsskrifstofunnar, en vinna við innleiðingu þessara kerfa sem og rekstrarsamhæfingu þeirra við önnur upplýsingakerfi eins og Schengen-upplýsingakerfið, upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir og upplýsingakerfi um fingrafaragrunn fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur átt sér stað um langt skeið og landamæradeild ríkislögreglustjóra verið leiðandi við þá vinnu. Mun þessi breyting og rekstrarsamhæfing kerfanna skipta sköpum við að auka gæði eftirlits innan svæðisins og ekki síður efla sjálfvirknivæðingu landamæraeftirlits.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til 2. umr.