153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

landamæri.

212. mál
[16:16]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Við nefndarmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd heimsóttum lögregluna á Keflavíkurflugvelli fyrir stuttu og fengum að sjá þær breytingar sem stendur til að gera á kerfum þar vegna þessa lagafrumvarps og þeirra breytinga sem þar eru lagðar til. Í frumvarpinu kemur orðið skilvirkni mjög mikið fyrir og talað er um að einn tilgangur frumvarpsins og þessara breytinga sé að tryggja skilvirkni við landamæravörslu. Það skaut því dálítið skökku við fyrir mér þegar við sáum hvaða breytingar verða gerðar á flugvellinum þar sem kom m.a. fram að sá tími sem það tekur hvern einstakling að fara í gegnum landamæraeftirlit fer frá 30 sekúndum, sem er meðaltalið í dag, upp í tvær mínútur. Tíminn fjórfaldast og þetta er eftir að búið er að innleiða rándýr tölvukerfi og alla þá gagnagrunna sem þarna á að setja á fót til að geyma gríðarlega viðkvæmar persónuupplýsingar um alla sem voga sér að fara yfir þröskuldinn.

Spurning mín til hæstv. ráðherra er: Hvernig tryggir þetta skilvirkni? Hvernig er það skilvirkni þegar afgreiðslutíminn verður lengri? Eftir að tölvukerfi hefur tekið við þessu öllu saman þá þarf samt að fara í gegnum mennskan landamæravörð. Verið er að bæta við ferlum og þyngja ferlið. Spurningin er því hvað þetta hefur með skilvirkni að gera.

Ég get síðan svarað að einhverju leyti spurningu hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur sem hún beindi til hæstv. ráðherra hér áðan, varðandi það hvernig þetta frumvarp mun leysa þann flóttamannavanda sem við stöndum frammi fyrir, og það er einfalt að svara því. Kerfið í Evrópu er nefnilega byggt upp á þann veg að ef þú ert flóttamaður og kemur hingað til lands þá færð þú vernd, en þú mátt ekki koma hingað. Það eru engar löglegar leiðir fyrir fólk að koma til Evrópu og sækja um hæli, engar. Það sem þessu kerfi er ætlað að gera (Forseti hringir.) er að tryggja það að hingað komi enginn að sækja um vernd.