landamæri.
Frú forseti. Ég ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hvernig er þessu ætlað að auka skilvirkni?
Henni var ekki svarað en hæstv. ráðherra segir: Fólk þarf einfaldlega að skrá sig og er ekki eðlilegt að það þurfi að skrá sig og gera grein fyrir því hvert það sé áður farið er yfir landamæri? Gott og vel. Vandinn er sá að þú þarft ekki einfaldlega að skrá þig heldur þarft þú að hafa heimild til komu til að geta skráð þig og fengið þessa ETS-áritun, sem er einhvers konar afnám áritunarfrelsis í heiminum ef ég skil þetta rétt. Þú þarft að hafa heimild til komu. Einstaklingur sem ætlar að koma til Evrópu og sækja um vernd sem flóttamaður hefur enga heimild til þess. Það er engin heimild í lögum fyrir fólk að koma hingað og sækja um vernd. Þetta fólk verður því stoppað áður en það kemur til landsins. Það liggur í augum uppi að það er megintilgangurinn með þessum reglum. Mig langar bara að lýsa yfir vonbrigðum með að hæstv. ráðherra komi með yfirlýsingar eins og þær að við séum að ganga lengra en nokkur önnur þjóð í Evrópu (Forseti hringir.) í því að veita fólki frá Venesúela vernd, sem er hreinlega ekki rétt.