153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

landamæri.

212. mál
[16:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get sagt það um þetta Schengen-kerfi að á þingferli mínum hef ég stundum, sérstaklega fyrir nokkrum árum, haft ákveðnar efasemdir um hvort við ættum að vera innan þess kerfis eða ekki. Það hefur auðvitað verið skoðað ítrekað af ríkisstjórnum og þingmönnum í gegnum tíðina. Ég held að þeir sem kynna sér vel kosti þessa kerfis — ég hef alla vega ekki heyrt í neinum sem hefur komist að annarri niðurstöðu, ekki frá þeim sem skoða þessi grundvallaratriði og bera saman kosti og galla — komist alltaf að sömu niðurstöðu. Það er mikill ávinningur fyrir okkur, fámenna þjóð í stóru landi, að vera hluti af þessu kerfi. Kerfið verður auðvitað allt miklu skilvirkara með þessum miðlæga upplýsingagrunni sem við fáum aðgang að. Þetta nýtist okkur í miklu stærra samhengi en bara í eftirliti á landamærum. Þetta er kerfi sem nýtist okkur líka í alþjóðlegri glæpastarfsemi, rannsóknum okkar og samskiptum við önnur lögregluyfirvöld þegar mál tengjast skipulagðri glæpastarfsemi sem virðir engin landamæri. Þetta kemur inn á mjög víðum grunni og það er mjög öflugt fyrir okkur að vera þátttakendur í þessu.

Það er auðvitað gætt vel að persónuverndarmálum hérna. Við getum alveg örugglega nýtt okkur þetta — ég vil nefna þessar fjárfestingar. Það er verið að fjárfesta núna fyrir, ef ég þekki rétt, á fimmta milljarð í kerfum á Íslandi. Þar eru Íslendingar að leggja fram um 400 milljónir sjálfir. Við erum þarna hluti af neti sem við gætum aldrei komið okkur upp sjálf. Og að bera okkur saman við tugmilljóna þjóðir í þeim efnum (Forseti hringir.) er auðvitað ekki alveg réttur samanburður. Við erum fámenn þjóð í stóru landi.