Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

gjaldþrotaskipti o.fl.

277. mál
[16:41]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir kynninguna á þessu mjög svo mikilvæga máli. Hér er um að ræða mál sem samið var um í lífskjarasamningi að yrði lagt fram af ríkisstjórn og er það nú lagt fram öðru sinni. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að samflokksmenn hans hér á þingi muni styðja framgöngu þessa máls?

Það kom fram í umræðum þegar þetta mál var síðast til umfjöllunar að það hafi helst staðið í Sjálfstæðisflokknum. Þess vegna vil ég bara spyrja þessarar einföldu spurningar: Hefur hæstv. ráðherra heyrt eitthvað af andstöðu eigin flokksfólks við þetta þarfaþing?