gjaldþrotaskipti o.fl.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Þegar ég skoða frumvarpið þá finnst mér ákveðin bjúrókredda í því, ef við getum orðað það þannig. Ég hefði talið einfaldara að skoða þetta út frá skilasvikaákvæðinu, að víkka það út og gera skiptastjórum það auðveldara að ná eignum sem hafa lent í kennitöluflakki og kæra þá einstaklinga sem stunda slíkt. En mig langar að minna á stjórnarskrárákvæðið um atvinnufrelsi, 75. gr. Þar segir, með leyfi forseta:
„Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“
Þá er spurningin þessi: Ef menn ætla að setja atvinnurekstrarbann á einstaklinga verða almannahagsmunir að vera fyrir hendi. Ég get ekki séð að almannahagsmunir séu alltaf tryggðir með eins konar mati. Ég tel að það þurfi að vera konkret, að það sé grunur um refsiverða háttsemi eins og í norsku lögunum og líka að um brot sé að ræða, skilasvik, að kennitöluflakk liggi fyrir.
Mér finnst mjög mikilvægt að við höfum í heiðri stjórnarskrárákvæðið sem er hér undir, um atvinnufrelsi, og mér finnst vanta umfjöllun um það í frumvarpið og líka um hegningarlagaákvæðið, 250. gr.