153. löggjafarþing — 11. fundur,  10. okt. 2022.

gjaldþrotaskipti o.fl.

277. mál
[16:55]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Stundum er það þannig að ekki næst að klára mál. Líkt og ég sagði þá voru umsagnir almennt jákvæðar. Bent var á aðrar útfærslur og leiðir og nefndinni tókst einfaldlega ekki að ljúka vinnunni. Ég bind þó vonir við að nú sé meðal annars hægt að byggja á því sem áður hefur komið fram. Auðvitað fer málið aftur til umsagnar og það kann vel að vera að fleiri muni núna skila umsögnum, en síðan er það vitaskuld þannig að málum reiðir misjafnlega af. Ég vona þó að þetta verði samþykkt fljótlega.