um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég vil líkt og málshefjandi leita atbeina forseta um að ná þessum upplýsingum út úr framkvæmdarvaldinu. Ég hef reyndar af því áhyggjur, hafandi nýlega tekið sæti í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og heyrandi af því sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hefur greint frá, að þessar upplýsingar séu hreinlega ekki til í íslenska stjórnkerfinu. Þá fyrst erum við í vondum málum. Þá fyrst þyrfti að fara að grafa djúpt eða stinga djúpt, eins og maðurinn sagði um árið, til að leita uppi þær upplýsingar sem fjármálaráðuneytinu ber að veita hv. Alþingi. Ég ætla rétt að vona að embættismenn í ráðuneytinu hafi unnið þessar upplýsingar og þær séu á reiðum höndum. Af því að ef við vitum ekki hvað við erum að gera í loftslagsmálum þá erum við í verri málum en nokkurn grunaði.