153. löggjafarþing — 12. fundur,  11. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Hatursorðræða er ekki bara brot gegn þeim sem henni er beint að. Hatursorðræða er beinlínis hættuleg samfélaginu. Þegar fólk í valdastöðum talar hefur það víðtæk áhrif. Almenningur gengur út frá því að einstaklingar sem falin hefur verið sérstök ábyrgð í þágu þjóðarinnar tali af þekkingu og heiðarleika. Fólk trúir þeim. Fólk í valdastöðum fullyrðir eitthvað í viðtölum án þess að blaðamenn fari í sérstaka rannsóknarvinnu til að kanna hvort fullyrðingin sé sönn eða ekki því að almennt er gengið út frá því að fólk í valdastöðum segi satt.

Óljósar fullyrðingar og óræð skilaboð inn á milli lína geta haft hughrif langt umfram tilefni. Hér í þingsal og víðar hefur hæstv. dómsmálaráðherra látið ýmis ummæli falla sem tilefni er til að gera athugasemdir við og hafa áhyggjur af. Óljósar staðhæfingar og fullyrðingar sem senda þau skilaboð að fólk á flótta, sem leitar hingað skjóls frá stríði og öðrum hörmungum, sé upp til hópa óheiðarlegt, ekki hingað komið til að vinna og vera þátttakendur í samfélaginu og jafnvel hættulegt. Þetta snýst ekki bara um einhvern pólitískan ágreining á milli hæstv. dómsmálaráðherra og annarra sem eru honum ósammála um stefnu Íslands í flóttamannamálum. Þetta er alvarlegt mál upp á líf og dauða fjölskyldna sem eru venjulegt fólk eins og við. Það að sjálfur dómsmálaráðherra landsins taki undir og jafnvel stuðli að orðræðu sem er til þess fallin að auka jaðarsetningu fólks sem þegar tilheyrir minnihlutahóp er grafalvarlegt mál. Ég skora því á hæstv. dómsmálaráðherra og samstarfsfólk hans í þessari ríkisstjórn að sýna því valdi sem þeim hefur verið falið virðingu og byrja að tala skýrt og segja satt. Þjóðin á það skilið.