Niðurstöður starfshóps um neyðarbirgðir, munnleg skýrsla forsætisráðherra .
Herra forseti. Ég þakka andsvarið og heyri að verið er að hugsa þetta á þessum nótum. Ég hef stuttan tíma og ætla því að halda mig aðeins við þessar hugleiðingar og halda mig við lyfin úr því að við vorum komin þangað, vegna þess að í eftirfylgninni þá erum við að tala um atvinnulífið með stjórnsýslunni eða ráðuneytunum og þriðja geiranum. Þá langar mig aðeins að velta upp spurningunni um aðkomu okkar hér, vegna þess að að mörgu leyti er staðan eins og hún er vegna þess að það eru í gildi lög eða reglugerðir sem binda hendur einhverra af þessum aðilum sem eiga að koma saman og þá er það okkar að laga til þar. Og af því að hæstv. forsætisráðherra talaði um ný lyfjalög sem leggja skyldur á heildsalana um birgðir þá er það líka svo að það eru í gildi lög og reglugerð sem draga úr ákafa lyfjaframleiðenda til að láta skrá lyf hér á landi þannig við munum fækka skráðum lyfjum og fjölga svokölluðum undanþágulyfjum. Það er ekki hægt að setja skyldur á birgðahald á undanþágulyfjum. Þetta er eitthvað sem pólitíkin þarf að taka þátt í að skoða. Þannig að ég velti því upp og langar líka að heyra hugleiðingar ráðherra um hvort hún sjái ekki þessa vinnu eiga sér stað hér inni, a.m.k. að einhverju marki.