153. löggjafarþing — 12. fundur,  11. okt. 2022.

Niðurstöður starfshóps um neyðarbirgðir, munnleg skýrsla forsætisráðherra .

[15:04]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða skýrslu um neyðarbirgðir, bráðnauðsynlega skýrslu og eina af þeim skýrslum sem við verðum eiginlega bara að hafa undir koddanum og fyrir framan nefið á okkur en ekki láta uppi í hillu að rykfalla, vegna þess að við getum lent seinna meir í þeirri stöðu að segja að við hefðum átt að vera búin að lesa þessa skýrslu, hefðum átt að vera búin að bregðast við og gera eitthvað.

Það er talað um nægar neyðarbirgðir. En hvað eru nægar neyðarbirgðir? Það er ekki skilgreint í þessari skýrslu og það er eitthvað sem við verðum að fara að skilgreina nákvæmlega á allan hátt. Hvað er nægilegt af fæðu, eldsneyti og öllu því sem við þurfum að hafa? Er það nægilegt í einn mánuð, þrjá mánuði, sex mánuði, og í hvaða flokkum þurfum við að skilgreina þetta? Við þurfum auðvitað að koma upp þessum miðlæga gagnagrunni til að skrá þessar nauðsynlegu neyðarbirgðir þannig að við vitum nákvæmlega á hverjum tíma, í rauntíma hreinlega, hvað er til og getum þar af leiðandi brugðist við ef eitthvað vantar.

Við þurfum þar af leiðandi líka að bretta upp ermarnar og fara að skrá hlutina um leið. Matvæli, áburður, korn og aðrar nauðsynjar eru eitt af því sem við erum háð en erum því miður ekki að framleiða og þar af leiðandi þurfum við líka að átta okkur á því hvaða neyðarbirgðir þarf og hvernig við eigum að standa að því að tryggja að það sé til sem við þurfum á að halda. Það er mjög gott í þessu að það eru ýmsar ábendingar um næstu skref en það þarf samt að skilgreina ýmsa hluti mun betur og hefja, eins og ég sagði áðan, strax undirbúning á því að gera eitthvað í málinu.

Ég vil aðeins snúa mér að lyfjum, lækningatækjum og ýmsum búnaði sem varðar lækningar og sérstaklega lyfin. Ég skal viðurkenna að það kemur manni svolítið á óvart þegar maður er búinn að vera í velferðarnefnd og síðan í velferðarnefnd Norðurlandaráðs að þar er búið að vera að ræða sameiginleg lyfjakaup Norðurlandanna. Svo er það líka, sem er auðvitað mjög nauðsynlegt mál, að aðili sem fær lyfseðil á Íslandi geti auðveldlega gengið með þennan sama lyfseðil, hvort sem hann er rafrænn eða skrifaður, inn í hvaða apótek sem er á Norðurlöndunum og fengið lyfin afhent. Upp kom sú staða hjá Norðurlandaráði að einstaklingur sem þurfti á lyfjum að halda var með lyfseðil en gat ekki leyst lyfin út af því að hann var kominn út úr sínu landi. Þetta er auðvitað bagalegt og segir okkur að þetta á ekki að vera flókið vegna þess að við erum í það miklu samstarfi að við eigum að geta komið þessu á, bæði þessum lyfseðlum og líka þessum lyfjagrunni. Það skiptir okkur hér á Íslandi gífurlega miklu máli að komast inn í lyfjagrunninn þar sem t.d. Norðmenn og Svíar eru með um 14.000 tegundir lyfja. Þar fyrir utan fáum við þar af leiðandi líka lyf á mun hagkvæmara verði.

Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum örmarkaður. Við erum svo lítill markaður að flest lyfjafyrirtæki hafa engan áhuga á því að fara að senda og framleiða lyf fyrir okkur sérstaklega, hvað þá að þurfa bæði að íslenska umbúðirnar og íslenska leiðbeiningar ofan í viðkomandi umbúðir. Þannig að við verðum að finna aðrar lausnir og við megum ekki bíða með það vegna þess að, eins og ég sagði hér í andsvörum við hæstv. forsætisráðherra, það er of seint að bregðast við þegar skaðinn er skeður. Vöntun á lyfjum, lífsnauðsynlegum lyfjum, fyrir fólk er ekki ásættanleg. Við erum ríkt samfélag og eigum að sjá til þess að lyf séu til staðar. Það er ekki eðlilegt að það skuli geta orðið lyfjaskortur hjá fötluðum einstaklingum, hvað þá börnum einnig. Þetta er hlutur sem við eigum að taka á og drífa okkur í.

Það er líka, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir benti á hérna áðan og það er í skýrslunni, auðvitað með ólíkindum að það hafi einhvern tíma verið bara tíu daga þotueldsneyti til og að við séum að meðaltali ekki með nema mánaðarbirgðir af olíu. Maður trúði því ekki. Ég hefði talið að það væri alveg lágmark að við hefðum þrjá mánuði. Það sýnir bara að við höfum ekki verið að hugsa út í hvernig þetta er. Það er einmitt tekið fram í skýrslunni að það séu lögfestar 90 daga lágmarksbirgðir, sem ég myndi segja að væri algjört lágmark og er eiginlega óskiljanlegt að það skuli ekki vera.

Við þurfum að huga líka að mikilvægum rekstri og innviðum í samfélaginu. Eitt af því sem ég talaði um hérna er slökkviskjóla sem ég vil haf. Ég hefði helst viljað eina í hverjum landshluta en þrjár segja þeir og vonandi þurfum við aldrei að nota þær. En við erum líka í þeirri stöðu, sem hefur komið upp og er búið að benda á, sem er auðvitað eitt af því sem þarf — það eru neyðarbirgðir slökkviliðs. Við vitum að þetta er úrelt úti um allt land. Við erum einhvern veginn steinsofandi því að við höldum að hlutirnir reddist þegar á þarf að halda en svoleiðis eru hlutirnir ekki, vegna þess að ef hlutirnir eru ekki til staðar þegar váin kemur yfir þá erum við í slæmum málum. Við verðum að fara að taka okkur til og stefna að því að hrinda í framkvæmd því sem er t.d. bent á hérna í skýrslunni. Ég er eiginlega sannfærður um að við hljótum að gera það og það kemur nefnilega vel fram í þessum ábendingum um næstu skref í þessum málum.

Ég ætla ekki að hafa neina langlokuræðu um þetta. Við verðum bara að hætta að undirbúa, við verðum að fara að framkvæma. Ég held að best væri að við tækjum þessa skýrslu og færum vel ofan í hana og ég vona svo að ríkisstjórnin fari þar af leiðandi næst í það að reyna að koma í framkvæmd þeim málum sem nauðsynleg eru til að tryggja að við séum þó alla vega að fara í að forgangsraða þeim málum sem þarf að taka á, byrja á þeim nauðsynlegu málum sem varða lyfjamál og heilsufarsmál og síðan koll af kolli þangað til við erum búin að uppfylla þessa skýrslu. Við náum kannski aldrei að uppfylla hana fullkomlega, en ég held að okkar skylda sé sú að fara vel í gegnum og gera okkar besta til að byrja a.m.k. að gera það vegna þess að þannig byrgjum við brunninn áður en nokkur þarf að detta ofan í hann.