153. löggjafarþing — 12. fundur,  11. okt. 2022.

Niðurstöður starfshóps um neyðarbirgðir, munnleg skýrsla forsætisráðherra .

[16:40]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framlagða skýrslu og umræður um þetta brýna mál hér í dag. Ég hef fylgst með ræðum þingmanna og er ánægð með þátttökuna í þessari umræðu. Þjóðaröryggisráð tók saman skýrslu árið 2021 sem snertir í sjálfu sér á mörgu ef ekki flestu því sem hér er farið yfir. Þá komu margir vankantar í ljós og hér erum við nú aftur að ræða að miklu leyti óbreytta stöðu. Skýrslan er góð og varpar ljósi á stöðuna þegar horft er á mikilvægar undirstöður en ég staldra strax við þann punkt að hliðstæð greiningarvinna hefur farið fram áður og fremur nýlega. Mér finnst skorta upp á að næsta skref hafi verið tekið í kjölfar þessara skýrslna. Það þarf einfaldlega aukinn fókus á lausnir í ljósi þess að staðan hefur nú þegar verið greind. Við þekkjum vankantana og það er tímabært að setja fram tilteknar aðgerðir til að bregðast við. Það kemur í ljós í skýrslunni að það voru engin lágmarksviðmið í flokkum um hvað ætti að vera til, þ.e. hversu lengi birgðir í landinu skyldu endast. Við munum öll eftir því að í upphafi heimsfaraldurs var þessi umræða mjög í deiglunni. Rætt var við heildsölur sem töluðu um að staðan hjá þeim væri alla jafna þannig að þær væru með birgðastöðu til þriggja mánaða en þá snerist samtalið um að horft væri til þess að eiga birgðir til 5 mánaða hið minnsta út af ástandinu.

Heimili landsins eiga almennt ekki neyðarbirgðir eins og gefur að skilja, en árið 2020 gaf landlæknir út lista yfir æskilegt birgðahald heimila í ljósi stöðunnar vegna heimsfaraldurs. Á þeim lista voru nefndar vörur sem ég held að við tengjum öll við krísuástand; niðursuðuvörur, ávaxtasafar með langt geymsluþol, pasta, hrísgrjón, kornvörur og aðrar vörur með lengra geymsluþol. Það er ljóst af þessum lista að við erum upp á aðra komin í þessum efnum. Ég held að við og stjórnvöld ættum að einbeita okkur að því að einfaldlega auka fræðslu til almennings. Það væri gott og brýnt skref og einföld aðgerð að upplýsa almenning í landinu betur um hvaða vörur þetta eru og hvert æskilegt viðmið og magn er í þessum efnum. Í skýrslu starfshópsins er bent á niðurstöður og ábendingar í skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021, en með leyfi forseta segir þar:

„Gera þarf reglulegar úttektir á matvælabirgðum í því skyni að tryggja að nægar birgðir séu til í landinu af matvælum til a.m.k. sex mánaða og skilgreina lágmarksbirgðir af matvælum og aðföngum til matvælaframleiðslu. Þá er þörf á að gera viðbragðs- og neyðaráætlun vegna matvælaskorts, m.a. í samráði við helstu birgja.“

Það er ljóst af báðum skýrslum að þörfin á aukinni sjálfbærni í matvælaframleiðslu er mikilvægur þáttur í matvælaöryggi okkar á Íslandi. Ég er á því að stjórnvöld eigi að stíga skref í þessum efnum, liðsinna bændum við að þróa grænmetisrækt og í því að framleiða prótín til manneldis úr jurtaríkinu. Það er framleiðsla sem með rétt fram settum, pólitískum aðgerðum og stuðningi getur orðið raunverulega sjálfbær.

Mig langaði eins og aðrir hér að koma inn á stöðu mála hvað varðar lyf. Í sumar birtust af því fréttir að tilkynningar um lyfjaskort væru allmargar. Ég man eftir fréttum þar sem sérstaklega var fjallað um lyfjaöryggi barna. Þessi vandi og staða er ekki bundin við Ísland en birgðastaðan virðist samkvæmt skýrslunni vera um einn til tveir mánuðir. Ég óskaði sérstaklega eftir fundi í velferðarnefnd um þetta efni í sumar eftir að hafa heyrt yfirlækni á Barnaspítala Hringsins lýsa því yfir að það kæmi upp með reglubundnum hætti að það vantaði lyf fyrir börn vegna þess að kerfið virkaði ekki sem skyldi við að flagga því þegar skortur væri fyrirsjáanlegur. Blessunarlega var þar nefnt að þarna væri um að ræða lyf sem fá börn þyrftu á að halda en gætu þó verið þessum börnum lífsnauðsynleg. Sú staða kom upp að foreldrar stæðu í apóteki með lyfseðil frá lækni og ekki bara voru lyfin ófáanleg í því apóteki heldur á landinu öllu. Hérlendis eru auðvitað, vegna stöðu okkar, meiri líkur á því að afleiðingar af þessu verði alvarlegri en í nágrannalöndum og þess vegna er sérstaklega brýnt að allur mekanismi virki í þessum efnum. Ástæðurnar eru margvíslegar en stefna stjórnvalda er þar á meðal. Ég nefni t.d. að skráð hámarksheildsöluverð sjúkrahúslyfja skal miðast við lægsta verð í öðrum norrænum ríkjum. Síðan mætti leysa aðrar breytur sem fylgja smáum markaði með því að vera hluti af stærri kaupendamarkaði, t.d. í samstarfi við Norðurlöndin, og ég verð að nefna, sem nefndarmaður í fjárlaganefnd, að mér finnst mikið áhyggjuefni og sérstakt að verða vitni að því hverjar umsagnir Landspítalans eru, hver umfjöllun formanns Læknafélagsins er í fjölmiðlum um það sem sett er í lyfjakaup í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 á Íslandi. Þegar litið er til þess hver staða Íslands er í samanburði við önnur lönd þá finnst mér óþarfi að við skulum vera í þeirri stöðu að læknar lýsi því yfir í fjölmiðlum að fjárlögin geri ekki ráð fyrir því að framförum heilbrigðisvísinda sé mætt með þeim hætti að kaupa ný og betri lyf. Þau einfaldlega kosta meira og óskandi er að breyting verði á þessu í meðförum frumvarpsins fyrir 2. umr.

Mig langaði líka til að nefna orkumálin. Í orkustefnu Íslands frá 2020 er kallað eftir því að horft sé til alþjóðlegra viðmiða um lágmarksbirgðir af eldsneyti í landinu og orkustefnan gerir þá ráð fyrir því að hér séu til birgðir til 90 daga, en sem stendur eru 20–50 daga birgðir í landinu. Þotueldsneytið hefur farið undir tíu daga og skýrslan kallar eftir aðgerðum til að ná markmiðum orkustefnunnar fram. Við erum upptekin af því að við séum að mörgu leyti mjög lánsöm þjóð hvað varðar orku og ekki þarf að orðlengja um það, en í þessu samhengi erum við í 52. sæti af 100 löndum, þ.e. þegar kemur að orkuöryggi, og fyrir neðan mörg lönd í Evrópu. Ástæðan virðist að mestu leyti vera skorturinn á neyðarbirgðum. Mér finnst þessi punktur töluvert sláandi og nefni í því sambandi efnisgrein úr þverfaglegu áhættumatsskýrslunni frá 2009 sem var gefin út í kjölfar þess að varnarliðið fór, en þar segir, með leyfi forseta:

„Bankahrunið sýndi að vöruskortur getur orðið ef greiðslumiðlunarkerfið innanlands og viðskipti við útlönd stöðvast í einhvern tíma. Meta þarf í samráði við einkaaðila nauðsyn þess að auka birgðir ákveðinna matvælategunda í landinu, t.d. þannig að þær nægi í sex mánuði. Eins og staðan er núna nægðu þær aðeins í fáar vikur.“

Þar segir einnig að æskilegt væri að koma upp neyðarbirgðum af olíu. Leggja þyrfti mat á magn olíu sem þyrfti til að tryggja grundvallarstarfsemi þegar neyðarástand skapast í nokkurn tíma. Nánast allt sem kemur fram í þessari skýrslu frá 2009 er hið sama og hefur lítið breyst, þrátt fyrir að við höfum gengið í gegnum bankahrun, (Forseti hringir.) heimsfaraldur og núna stríð. Það held ég að sé sá punktur sem við hljótum að taka með okkur í lokin, að ríkisstjórnin fari í það að gera markvisst aðgerðaplan á grunni allrar þeirrar góðu vinnu sem hefur átt sér stað. Við eigum öll gögn til þess að halda áfram.