Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 12. fundur,  11. okt. 2022.

almannatryggingar.

44. mál
[18:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið og ég legg til að hv. þingmaður leggi fram fyrirspurn með nákvæmlega þessum spurningum: Hverjum datt þetta í hug og af hverju er þetta svona? Í umræðum um neyðarbirgðir fyrr í dag sagði ég að það væri gott að hæstv. forsætisráðherra segði ekki bara: Þetta reddast. Ég vona líka að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra segi ekki bara: Af því bara.