Störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil vekja athygli á frumvarpi okkar í Samfylkingunni sem ég mælti fyrir í gær, um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða í þá veru að vinna gegn samþjöppun. Samþjöppun í sjávarútvegi er mikil og fáir útgerðarrisar verða stöðugt ríkari og valdameiri í samfélaginu. Það ásamt fleiru vekur upp þá tilfinningu meðal almennings að ekki sé rétt gefið þegar ríkið úthlutar þjóðareigninni. Ósætti um fiskveiðiauðlindina er einkum vegna þess að fiskveiðistjórnarkerfið er lokað og nýliðun er nánast ómöguleg. Kvótinn safnast á fárra hendur, veiðigjaldið er of lágt og við Íslendingar höldum takmörkuðum gæðum hjá fáum útvöldum. En hvað sem gert verður í þessu þarf nauðsynlega að skýra lagagreinarnar í lögunum um stjórn fiskveiða um tengda aðila og raunveruleg yfirráð þannig að lögin vinni í raun gegn samþjöppun eins og þeim var ætlað að gera.
Frumvarpið sem ég mælti fyrir í gær gerir ráð fyrir að tengdir aðilar teljist lögaðilar sem stjórnað er af sömu einstaklingum og hjón, sambúðarfólk, börn þeirra og fósturbörn, auk lögaðila í þeirra eigu teljist tengdir aðilar. Einnig ef annar aðilinn fer með a.m.k. 25% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í hinum. Ítarlegri skilgreining er á því í frumvarpinu hvað felst í raunverulegum yfirráðum en kveðið er á um í gildandi lögum um stjórn fiskveiða og síðan er kveðið á um málsmeðferð Fiskistofu.
Forseti. Nýlegt dæmi um aukna samþjöppun í greininni eru kaup Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á Vísi í Grindavík. Ef frumvarpið sem ég mælti fyrir í gær hefðu verið gildandi lög þegar áform um sölu voru uppi hefði ekki orðið af þeirri sölu.