153. löggjafarþing — 13. fundur,  12. okt. 2022.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þreytist seint á að koma hingað upp og ræða um orkuöryggi sem er þjóðaröryggismál hér í landinu. Þrátt fyrir að veður spili inn í getum við ekki kennt veðrinu einu um þegar kemur að rafmagnsleysi. Staðreyndin er sú að við þurfum að byggja upp sterkara kerfi með fjölbreyttari lausnum. Á landsbyggðinni starfa stór fyrirtæki sem eru háð góðu afhendingaröryggi raforku. Um síðustu helgi var álverið á Reyðarfirði hætt komið vegna rafmagnsleysis. Ef álver er án rafmagns í meira en fjórar klukkustundir fer að harðna í kerjunum með þeim afleiðingum að þau eyðileggjast.

Sem betur fer vinnur Landsnet nú að endurnýjun byggðalínunnar og nýgangsettar flutningslínur á Norðausturlandi sönnuðu rækilega gildi sitt og komu í veg fyrir ófremdarástand í óveðrinu um síðustu helgi. En betur má ef duga skal enda mörg ljón í veginum fyrir áframhaldandi endurnýjun byggðalínunnar. Það er ekki boðlegt að fyrirtæki með milljarða fjárfestingar búi við slíkt rekstraróöryggi og það sama á við um minni fyrirtæki sem og búrekstur. Mikilvægt er að ráðast í þau verkefni sem þörf er á til þess að byggja upp öruggt og skilvirkt kerfi hér á landi. Smávirkjanir gegna þar lykilhlutverki en þær geta komið inn á raforkukerfi til stuðnings. Staðbundnar virkjanir geta skipt gríðarlegu máli. Þegar Laxárlína sló út um síðustu helgi fylgdi ekki straumleysi í kjölfarið þar sem Laxárvirkjun og Þeistareykjavirkjun sáu svæðinu fyrir rafmagni. Þannig var fyrirtækjum og fjölskyldum séð fyrir rafmagni sem annars hefðu búið við straumleysi. Smávirkjanir gegna einnig lykilhlutverki á landsbyggðinni og styðja m.a. við byggðaþróun þar sem annars skortir raforku.

Smávirkjanir stuðla ekki einungis að auknu orkuöryggi í landinu heldur geta þær einnig verið mikilvægur þáttur í að tryggja vaxtarmöguleika landsbyggðarinnar. Við þurfum að horfast í augu við þá alvarlegu stöðu sem við erum í varðandi orkuöryggi landsins (Forseti hringir.) en samhliða uppbyggingu smávirkjana er þó mikilvægt að gleyma því aldrei að vera í góðu samtali við samfélögin (Forseti hringir.) og mestu skiptir að uppbygging verði gerð af varfærni gagnvart viðkvæmri náttúru landsins.