153. löggjafarþing — 13. fundur,  12. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

41. mál
[18:07]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar við andsvari. Þetta eru auðvitað skynsamlegar ábendingar og tilvik sem maður myndi kannski ætla að ætti að vera hægt að smíða einhverjar málsmeðferðarreglur í kringum. En ástæðan fyrir því að ég spyr að þessu, hvort hv. þingmaður telji þessa lagabreytingu duga til þess að leysa stjórnvöld undan þessari skyldu til að áminna starfsmann í þeim tilvikum sem fjallað er um í 21. gr. laganna, er í raun sú að það gleymist stundum að stjórnvöld eru ekki bara bundin af ákvæðum starfsmannalaga í þessum efnum heldur líka, eins og hv. þingmaður nefndi í framsöguræðu sinni, bundin af stjórnsýslulögum, bæði skráðum og óskráðum reglum þeirra. En það sem meira er, það eru líka bara ákveðnar almennar reglur á vinnumarkaði sem gilda bæði um hið opinbera og atvinnurekendur í einkageiranum sem gleymast allt of oft.

Nú hefur Hæstiréttur margstaðfest að það hvílir almenn aðvörunarskylda á vinnuveitanda. Vinnuveitandi, hvort við erum að tala um atvinnurekendur eða stjórnvöld, eiga að áminna starfsmann og veita starfsmanni tækifæri til að breyta hegðun sinni og athöfnum áður en starfsmaðurinn er rekinn vegna vanrækslu eða annarra slíkra ástæðna. Þetta eru í raun reglur sem gilda bæði á almennum vinnumarkaði og opinberum vinnumarkaði. Ekki er þar með sagt að farið sé eftir þessari reglu að öllu leyti og í starfsmannalögunum eru ákveðnar málsmeðferðarreglur sem gera þetta skýrara vegna þeirra hagsmuna sem þar eru í húfi. Það sem ég kannski velti fyrir mér er hvort svona breyting, bara einfalt brottfall þessara ákvæða, muni ekki fyrst og fremst hafa þau réttaráhrif að draga úr skýrleika og skapa ákveðna réttaróvissu fyrir þá sem vinna hjá ríkinu. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því?