réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér gafst bara allt of stuttur tími til að fara nánar ofan í þetta en mér heyrist hv. þingmaður vera opinn fyrir breytingum og fæ kannski að heyra fleiri sjónarmið hvað það varðar í framlagi hans til þessarar umræðu hér á eftir.
Varðandi það hvort ég telji að þetta leysi stjórnvöld undan áminningarskyldunni og varðandi það hvað felist í þessum almennu reglum þá kom ég einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi, inn á það í ræðu minni að bæði eru þetta almenn viðmið og svo er rík réttarvernd tryggð í stjórnsýslulögum. Þessi tiltekna breyting miðar að því að breyta því ósveigjanlega og þunglamalega kerfi sem áminningarferlið er, sem hefur leitt til þess að það er hreinlega mjög lítið notað. Það er mjög svifaseint og erfitt í framkvæmd og það hefur á sér mjög neikvætt yfirbragð.
Ég tel, og Ríkisendurskoðun hefur tekið undir þau sjónarmið í skýrslu sem gefin hefur verið út um starfsmannahald ríkisins, að í stjórnsýslulögum, í þessu embætti umboðsmanns Alþingis, sem hefur verið komið á fót, og í almennum reglum sömuleiðis felist nægileg réttarvernd fyrir opinbera starfsmenn. Auðvitað er almenna reglan sú, þannig er það bara í framkvæmd, og við þekkjum það, að bæði hið opinbera og einkafyrirtæki leita allra leiða til að leysa starfsmannamál án þess að þurfa að segja starfsmönnum upp og ég tel að það muni ekki breytast. Ég tel þvert á móti að kerfið verði betra, verði gagnsærra og gagnlegra, bæði fyrir starfsmenn og forstöðumenn.