réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Af því að hv. þingmaður talar hér um frumvarpið á þann veg að það skerði réttindi og starfsöryggi ríkisstarfsmanna verð ég að undirstrika það, sem ég gerði þó í framsögu minni, að hér er ég ekki að mæla fyrir strípaðri vernd ríkisstarfsmanna eða breytingum á stjórnsýslulögum. En ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður þekki hina sögulegu og ríkjandi ástæðu fyrir því að þessi ríka réttarvernd opinberra starfsmanna er yfir höfuð til staðar. Hún er nefnilega ekki sett til þess að vernda starfsmennina heldur af því að það eru taldir vera hagsmunir ríkisins og almennings; ég velti fyrir mér, þegar ég hlustaði á hv. þingmann, hvort hann þekkti þessa sögu.
Það er enginn ágreiningur, það er engin óvissa í samfélaginu, um það hvað séu málefnaleg sjónarmið, það er áralöng framkvæmd um það innan stjórnsýslunnar og dómaframkvæmd. Þó að ég geti ekki vísað til meginskrifa um það frá Gunnari Thoroddsen heitnum þá ríkir enginn ágreiningur um það hvað séu málefnaleg sjónarmið þegar kemur að uppsögn starfsmanns. Það væri hægt að fara í það í lengra máli ef tími gæfist til.
Mig langaði hins vegar til að spyrja hv. þingmann beinnar spurningar. Þegar ég hlustaði á hv. þingmann fannst mér hann tala fyrir ákveðnum breytingum, að lögin væru á einhvern hátt ófullkomin. Mig langaði bara til að heyra beint frá honum hvort honum þættu þessi áminningarákvæði, sem eru lögfest, vera gagnleg, vera skilvirk, að notkun þeirra bendi til þess. Eða vill hv. þingmaður sjá breytingu á þessum ákvæðum?