153. löggjafarþing — 13. fundur,  12. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

41. mál
[18:32]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég geri mér grein fyrir því að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson mun ekki styðja það frumvarp sem hér liggur fyrir og er til umræðu. Ég er hins vegar kannski að velta fyrir mér hvort hv. þingmaður geti svarað tveimur spurningum eða svo. Í fyrsta lagi hvort honum finnist ekki eðlilegra og sanngjarnara að réttindi launafólks og réttarstaða þeirra sé jöfn, að það sé jafnræði alveg óháð því hver vinnuveitandinn er, hvort vinnuveitandinn er einkafyrirtæki, opinber stofnun, sveitarfélag o.s.frv., og hvort það sé ekki nauðsynlegt að nálgast viðfangsefnið með þeim hætti að við eigum að vinna að því að gæta jafnræðis launþega, launafólks, óháð vinnuveitanda. Mér virðist hv. þingmaður ekki vera þar heldur telji að það sé nauðsynlegt að það sé ekki jafnræði meðal launafólks af því að sumir vinna hjá einhverri ákveðinni tegund vinnuveitanda.

Seinni spurningin er í rauninni sú sem mér fannst þó hv. þingmaður gefa í skyn í seinna andsvari sínu við hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur áðan. Hann er þó tilbúinn til þess að skoða með einhverjum hætti breytingar á lögum um opinbera starfsmenn. Það kann að vera að ég hafi misskilið eða tekið rangt eftir, en m.a. skoða áminningarferlið, gera það skilvirkara að hægt sé að gera skipulagsbreytingar á opinberum rekstri o.s.frv., láta fólk taka pokann sinn ef svo ber undir, ef við getum sagt sem svo, vegna þess að það stendur sig ekki í starfi.

Og þá spyr ég, hæstv. forseti, fyrirgefðu að ég geng á tímann, hvaða breytingar hann er að tala um.