153. löggjafarþing — 13. fundur,  12. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

41. mál
[18:37]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Þá liggur það fyrir, ef ég hef skilið hv. þingmann rétt, að hann er ekki tilbúinn að fara í þá vegferð með mér og fleirum að tryggja að jafnræði ríki á milli launafólks á Íslandi óháð því hver vinnuveitandinn er. Hann færir fyrir því rök, vissulega, en það eru hins vegar rök sem ég get ekki tekið undir og held að geti í rauninni gert okkur erfiðara fyrir í því viðfangsefni okkar, sem á að vera sameiginlegt, sem er að reka ríkið með þeim hætti að það sé hagkvæmt og veiti þá þjónustu sem það á að veita og við ætlumst til að sé veitt, hvort heldur það er í ráðuneyti, í heilbrigðiskerfinu eða hvar sem er. Það skiptir nefnilega máli, ef við ætlum að vera samkeppnishæft land, að við séum með svipaðar reglur, a.m.k. ekki strangari reglur og ekki meira íþyngjandi, heldur en gengur og gerist í þeim löndum sem við ekki bara berum okkur saman við heldur erum í samkeppni við um starfsmenn en líka bara að fólk velji að búa hér. Þess vegna skiptir máli hvernig okkur tekst til í ríkisrekstrinum. Ein forsenda fyrir því að við náum raunverulegum árangri í ríkisrekstrinum er að jafna stöðu íslensks launafólks á vinnumarkaði, alveg óháð því hver vinnuveitandinn er. Ég vona að hv. þingmaður, sem hefur sýnt að hann hefur ágæta innsýn inn í hagfræðileg og fjármálaleg málefni, skilji þessi rök og a.m.k. sé tilbúinn til að velta þeim fyrir sér þegar við tökum til við að ræða þetta mál í nefndum og aftur hér í þingsal þegar það verður afgreitt úr nefnd, sem vonandi verður sem fyrst.