réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Já, ég skil vissulega hvað hv. þingmaður er að fara en ég er ekki alveg sammála honum. Eins og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom inn á áðan þá eru ákveðin rök sem liggja að baki sérstakri réttarvernd fyrir opinbera starfsmenn sem hafa ekki bara með þá sjálfa að gera heldur ekki síður fyrir fólkið sem þeir eru að þjónusta og fyrir réttaröryggi almennt í samfélaginu. Það var þess vegna sem Gunnar Thoroddsen mælti fyrir lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna árið 1954 þar sem m.a. þessar reglur eru innleiddar. Ég held að flest þau sjónarmið sem hafa legið að baki þeirri sérstöku réttarvernd fyrir opinbera starfsmenn, m.a. í ljósi skyldna þeirra, eigi enn þá við.