153. löggjafarþing — 14. fundur,  13. okt. 2022.

málefni flóttafólks.

[10:37]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hef furðað mig á þeim málflutningi sem ég hef heyrt opinberlega um að ekkert samráð hafi verið haft við sveitarfélög vegna móttöku flóttafólks. Raunar hefur nefnd verið starfandi frá árinu 2017 um samræmda móttöku flóttafólks og hennar hlutverk var að gera tillögur að samræmdu móttökukerfi fyrir flóttafólk óháð því hvernig það kæmi til landsins. Við erum búin að ræða þetta margoft á vettvangi Alþingis, ég þarf ekki að rifja það upp fyrir hv. þingmanni.

Í febrúar 2021 var farið í tilraunaverkefni um samræmda móttöku flóttafólks og þar var sérstaklega horft til fyrirkomulagsins í Noregi. Í byrjun árs 2022 var settur á fót starfshópur, af því að hv. þingmaður kallar eftir því að við hefðum getað verið betur undirbúin. Staðreyndin er sú að starfshópur var settur á laggirnar og hann skilaði af sér lokadrögum að samningi, kröfulýsingu og kostnaðarlíkani og þau samningsdrög hafa verið kynnt sveitarfélögum. Fyrirhugað er að þeim fylgi fjármunir og því verð ég að segja að ég átta mig ekki alveg á þessari umræðu um að þetta hafi ekki verið undirbúið með nægjanlegum hætti. Ég get eiginlega ekki fallist á það. (Forseti hringir.) Ég skil þó alveg að almennt er staða sveitarfélaga þung, þau halda sína fjármálaráðstefnu í dag og auðvitað getum við ekki litið fram hjá því að þessi mikli fjöldi fólks skapar álag, ekki bara á ríkið heldur einnig stofnanir sveitarfélaga.