skortur á lyfjum.
Virðulegur forseti. Þegar maður fær þær upplýsingar frá fötluðum einstaklingi sem fær ekki lyfið sitt að það sé farið að skaða hann, þá spyr maður sig: Hvað er að kerfinu? Hvernig getum við leyft það að börn og fatlað fólk fái ekki lyfin sín á Íslandi í dag? Við erum að tala um lífsnauðsynleg lyf. Við erum með mikinn fjölda fólks á biðlista en nú erum við komin með nýja ömurlega stöðu og segjum við fatlað fólk og börn: Þið fáið ekki lyfin ykkar vegna þess að við sofnuðum á verðinum. Það ber enginn ábyrgð. Það er lágmarkskrafa að við séum ekki að skaða fatlað fólk og börn á Íslandi. Þá er haft eftir formanni Læknafélags Íslands að ástandið hafi sjaldan verið eins slæmt:
„Þetta hefur verið óvenju slæmt undanfarið og virðist vera viðvarandi skortur. Þetta hafa verið 70–80 lyf eftir því sem okkur sýnist. Þá er líka farið að skorta þessi gamalgrónu lyf.“
Þegar lyf er skráð og undanþágulyf hefur aldrei verið skráð en er samt lífsnauðsynlegt er í raun enginn sem ber ábyrgð á birgðastöðu þess í landinu. Það er engin tilkynningarskylda, ekkert ferli fer í gang af sjálfu sér. Ef skortur verður á þessum lyfjum skilar það sér ekki til Landspítalans eða sérgreinalækna á neinn formlegan hátt. Sjúklingur kemur ítrekað í apótek og lyf er ekki til. Fyrstu upplýsingar sem t.d. barnalæknir ætti að fá er að lyf fáist ekki í apóteki.
Þess vegna spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Hvernig stendur á því að þessi staða er svona í dag? Hvað er verið að gera til að koma í veg fyrir að fatlað fólk og börn verði fyrir varanlegum skaða vegna lyfjaskorts? Þetta er dauðans alvara. Það verður að sjá til þess að þegar fólk þarf á lyfjum að halda, lífsnauðsynlegum, séu þau til.