skortur á lyfjum.
Virðulegur forseti. Ég þakka heilbrigðisráðherra svörin. Ég get ekki annað en verið innilega sammála honum vegna þess að í Svíþjóð og Noregi eru 14.000 lyf. Við erum með 3.000 og 4.000 með undanþágulyfjum. Við þurfum að komast í þann gagnagrunn og við þurfum líka að einfalda regluverkið þannig að íslenskar þýðingar séu ekki að þvælast fyrir því að fólk fái nauðsynleg lyf. En þetta er ekki það eina sem er að heilbrigðiskerfinu. Við erum að fá upplýsingar frá bráðamóttökunni um að þar sé allt komið á annan endann. Það vantar 38 hjúkrunarfræðinga á vakt í næstu viku. Ég spyr mig: Hvað er að í heilbrigðiskerfinu? Það er alltaf að verða verra og verra og það hefur versnað stórlega síðan ég kom hingað inn á þing. Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku sagði í Fréttablaðinu um daginn: Þetta er búið að vera slæmt, mjög slæmt. Við höfum lengi haldið að það gæti ekki versnað. Við erum búin að hrópa, kalla, þegja, hvísla, kjökra og gráta — allan tilfinningaskalann.
Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin geri eitthvað eða segi hreinlega af sér ef hún ræður ekki við þetta?