153. löggjafarþing — 14. fundur,  13. okt. 2022.

skortur á lyfjum.

[10:44]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Varðandi fyrri fyrirspurn hv. þingmanns þá höfum við reynt að halda verði á lyfjum niðri, verandi á þessum litla markaði. Það er rétt, sem hv. þingmaður kemur inn á, þar erum við að reyna að halda verði á þessum dýru leyfisskyldu lyfjum í takti við það sem gerist á Norðurlöndum. Þar er m.a. miðað við verðkörfur Finnlands, og það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að hlutfall undanþágulyfja er hátt og þau eru ekki í íslenskum pakkningum eða með fylgiseðil, eins og ég kom inn á áðan, og því er ekki birgðaskylda. Því er verið að vinna að lausn fjölmargra mála.

Varðandi bráðamóttökuna þá vinnum við stöðugt að málum hennar, bæði með stjórn og stjórnendum Landspítala og bráðamóttöku sem og í ráðuneytinu með sérstöku viðbragðsteymi (Forseti hringir.) sem fór af stað í upphafi sumars. Við erum búin að stækka þann hóp verulega til að taka utan um alla bráðaþjónustu í landinu. Því er búið að gera fjölmargt sem stendur til bóta.