mannréttindi sjálfræðissviptra.
Forseti. Fyrir flest okkar er erfitt að gera sér í hugarlund þá reynslu að vera svipt sjálfræði, að vera svipt völdum yfir eigin lífi, til að vera vistuð á stofnun, beitt nauðung eða neydd í lyfjagjöf, að ráða ekki yfir eigin líkama eða lífi. Samt er þetta raunveruleikinn fyrir fjölda einstaklinga á ári hér á landi sem eru sviptir lögræði eða sjálfræði. Þvingun og valdbeiting er alltaf ofbeldi í ýtrasta skilningi orðsins en er þó beitt reglulega í heilbrigðiskerfinu. Í einhverjum tilfellum kann það að virðast nauðsynlegt en oft getur því einnig fylgt enn meira ofbeldi, brot á mannhelgi og lífsgæðaskerðing. Afleiðingar sjálfræðissviptingar eru óöryggi, kvíði, þunglyndiseinkenni, einangrun. Staðreyndin er sú að nauðung, þvingun og ofbeldi fara ekki saman við læknandi meðferð.
Í svörum við fyrirspurnum mínum til dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra hefur komið fram að hér á landi hafa tæplega 200 einstaklingar verið lögræðissviptir og 400 til viðbótar sjálfræðissviptir síðustu tíu ár. Meðallengd sjálfræðissviptingar eru 393 dagar en meðallengd lögræðissviptingar eru 1.495 dagar, það er meira en fjögur ár. Dómsmálaráðuneytið, sem fer með málefni lögræðissviptra, hefur engar upplýsingar um ástæður sviptinganna. Aðspurður um hversu mörg hafi undirgengist þvingaða lyfjagjöf, verið vistuð á lokuðum geðdeildum eða í hve mörgum tilfellum lögræðissvipt fólk hefur dáið ótímabærum dauða vísaði dómsmálaráðherra á heilbrigðisráðherra. Í svari heilbrigðisráðherra var svo einfaldlega sagt að samræmd sjúkraskráning í sjúkraskrá um beitingu nauðungar eða þvingunarúrræða sé ekki til staðar og því séu engar upplýsingar til. Það virðist því enginn í stjórnsýslunni hafa minnstu hugmynd um afdrif þessa hóps sem býr við afar skert mannréttindi, oft í mörg ár. (Forseti hringir.) Forsætisráðherra er ráðherra mannréttindamála samkvæmt forsetaúrskurði og að vernda mannréttindi þessa hóps er á ábyrgð ráðherra. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra einfaldlega hvort henni finnist þessi staða ásættanleg.