mannréttindi sjálfræðissviptra.
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. þingmaður nefnir hér, að þessi málefni heyra í raun undir tvö ráðuneyti. Annars vegar heyra lögræðislögin undir dómsmálaráðherra og hins vegar hefur heilbrigðisráðherra farið með mál sem lúta að beitingu nauðungar, og það mál hefur auðvitað verið til umræðu á vettvangi þingsins. Af því að hv. þingmaður beinir því til mín hvernig mannréttindi þessa hóps verði tryggð vil ég bara vekja athygli á áliti umboðsmanns Alþingis sem hefur beint því til dómsmálaráðherra að taka það til skoðunar hvernig betur þurfi t.d. að skýra persónulegan rétt lögræðissviptra til kæru og hins vegar hvernig taka eigi á réttindum náinna aðstandenda þegar um lögræðissviptingu er að ræða. Það er alveg ljóst að við erum með töluverðan efnivið.
Það hefur verið rætt á þinginu að endurskoða lögræðislögin. Ég var að reyna að fletta því upp meðan hv. þingmaður talaði en ef ég man rétt var samþykkt tillaga um að fara af stað í einhvern undirbúning að slíku verkefni. Ég held því að það séu engin sérstök átök um það á þinginu að það er mikilvægt að fara mjög ítarlega yfir þessi mál. Ég veit að heilbrigðisráðherra er staddur í miðju samráðsferli hvað varðar beitingu nauðungar og hefur boðað að þau mál komi aftur á borð þingsins að loknu því samráði. Ég get fullvissað hv. þingmann um að bæði dómsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra eru með þessi mál til skoðunar þannig að þetta verði sem best gert og við getum tekið tillit til þeirra ábendinga sem fram hafa komið.