153. löggjafarþing — 14. fundur,  13. okt. 2022.

veiting ríkisborgararéttar.

310. mál
[11:09]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar. Á þessu frumvarpi eru sex nöfn. Hv. þingmaður ætlar ekki að lesa nöfnin upp en þau liggja fyrir á þingskjalinu. Þetta er ekki hefðbundinn tími í sögulegu samhengi, hvenær við erum að veita ríkisborgararétt. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 75 umsóknir um ríkisborgararétt á vorþinginu og í síðasta þinghléi en skv. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum að fenginni umsögn Útlendingastofnunar og lögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust einungis gögn vegna 30 umsókna á vorþinginu og lagði nefndin til að 12 yrði veittur ríkisborgararéttur. Var því nauðsynlegt að fresta afgreiðslu á hluta umsókna fram á haust þar til gögn hefðu borist og leggur nefndin því til að umsækjendunum, þeim sex sem hér eru tilgreindir, verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni. Ég vona að það verði samþykkt hér í þingsal á næstu mínútum og langar þá að nota tækifærið og óska þessum einstaklingum til hamingju með að vera orðnir íslenskir ríkisborgarar þegar þar að kemur.