Fjármögnun heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegi forseti. Það var mikil framför þegar rekstur einkarekinna heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu var heimilaður. Með breyttu fjármögnunarlíkani nutu íbúar góðs af þeirri breytingu. Samkvæmt ánægjukönnun standa einkareknar heilsugæslustöðvar sig mjög vel og standa hinum opinberu síst á sporði nema síður væri. Það liggur fyrir að þau sem þiggja þjónustu hjá einkareknum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu eru mjög ánægð með þá þjónustu sem þeim er veitt. Opinber heilsugæsla og einkarekin virðast því geta þrifist ágætlega hlið við hlið og um það gilda sömu lögmál hér og á öðrum Norðurlöndum. Staða einkaaðila og hins opinbera er hins vegar ójöfn þó að breytingar hafi verið gerðar á sumum þáttum til batnaðar og má þakka núverandi heilbrigðisráðherra fyrir sinn þátt í þeim breytingum. Það dugar hins vegar engan veginn til að jafna þennan mismun. Þau atriði sem gert hafa stöðuna verri eru t.d. greiðslur fyrir tækjabúnað til opinberra heilsugæslustöðva. Skipt hefur verið um greiðsluforsendur, geðþjónusta greidd fram hjá líkani og skólaheilsugæslu menntaskóla var skipað að fara til opinberrar heilsugæslu. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskaði eftir því að taka yfir þjónustu sem boðin var út árið 2016 og fékk það. Vegvísir um heilbrigðiskerfi var fluttur frá hlutlausum aðila til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Aðeins opinberar heilsugæslur fá greiddar stöður sérnámslækna í heimilislækningum og fyrir hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrunarnámi. Covid-greiðslur voru aðeins greiddar til opinberrar heilsugæslu, svo eitthvað sé nefnt. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er með ríka tengingu við Landspítalann sem felur m.a. í sér að Landspítalinn greiðir niður rannsóknir (Forseti hringir.) til opinberrar heilsugæslu sem er stærsti útgjaldaliður heilsugæslustöðva á eftir launakostnaði.
Virðulegi forseti. Ef við ætlum að tryggja (Forseti hringir.) öllum landsmönnum fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þarf að jafna stöðu einkarekinna heilsugæslustöðva gagnvart hinum opinberu. Ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra að sjá til þess.